Bergmál - 01.11.1956, Blaðsíða 19
B E R G M Á L
1 956 -----------------------
Kýpurvíni. Þær verður hann að
afhenda okkur.“
Þetta orð „okkur“ snart Alex-
ander óþægilega, en hann sendi
þó boð eftir þrælasmalanum
Kyrosi.
Hún hafði rétt fyrir sér. Hann
átti vínið í fórum sínum og fékk
hnefafylli af gulli fyrir það. Svo
settust þau Alexander og Thais
að fyrstu samdrykkju sinni —
en það varð ekki sú síðasta.
„Hvers vegna telur þú þig.
vitrari mér?“ endurtók kóngur
enn einu sinni.
„Vegna þess að ég er mann-
þekkjari, en þú ekki. Menn sýna
þér ekki sitt rétta andlit, vegna
þess að þú ert kóngur.“
„Látum okkur taka til dæmis
fremstu menn þína. Segjum
Kassander.“
„Já, hann er mér þó tryggur
og trúr.“
„Já, á meðan þú berð sigur af
andstæðingum þínum, er hann
of kænn til að sýna hvað í hon-
um býr og hvað hann vill. En
ef þú skyldir af einhverri ástæðu
falla frá eða verða að lúta í
lægra haldi, þá verður hann
orðinn kóngur í Makedóníu
daginn eftir.“
„Hm.“
„Svo skulum við minnast á
persnesku stórmennin þín, sem
þú hefir hafið til vegs og fengið
allt of mikil völd, til dæmi^
Lyros og Stolyx. Hve lengi held-
ur þú að þú getir treyst þessum
augnþjónum Asíulanda?“
„Ég hefi enga ástæðu til að
vantreysta þeim.“
„Nei, þú sérð það ekki, en það
g'eri ég. Nú skal ég segja þér
nokkuð: Þrælahirðirinn Kyros
hefir haft mig í sinni þjónustu
í tvö ár. Ég hefi njósnað1 fyrir
hann og lært margt og mikið
bæði um þig sjálfan og her-
sveitir þínar og aðra þegna. En
vegna þess að ég hefi aðstoðað
hann margvíslega, hefi ég fengið
betri mat en margur annar og
lifað sæmilegu lífi. Annars hefði
ég ef til vill látið í minni pok-
ann.“
Þannig sátu þau tvö yfir vín-
glösunum löngu eftir að nóttin
hafði hulið Mesopotamiu myrkri
sínu. Og upp frá þessu varð al-
gjör hirðbylting. Margir af
gömlu gæðingunum hurfu af
sjónarsviðinu og nýjir komu í
þeirra stað. Thais var ekki
lengur ambátt, aðstaðan hafði
gjörbreytzt. Alexander var á
ýmsan hátt þræll hennar. Hún
17