Bergmál - 01.11.1956, Blaðsíða 21
Medge var óbreyttur hermaður. Hann hélt að gjafirnar,
sem hann hafði með sér heim væru meira virði en
nokkuð það, sem hægt væri að fá fyrir peninga.
En börnin hans voru ekki á sömu skoðun um það.
Þau héldu að hann væri að gera grín.
HEIMKOMAN
Sagri eftir R. P. Hughes.
Óbreytti 'hermaðurinn Seth
Hedge þrengdi sér út í horn á
yfirfullum farþegaklefa í lest-
inni, lítilþægur og hógvær að
vanda. Hann hafði verið sæmd-
ur Viktoríukrossinum og var nú
á heimleið í leyfi. En hugsanir
hans voru jafnvel enn rislægri
en útlitið og framkoman. Eftir
klukkustund eða svo yrði hann
kominn iheim eftir þriggja og
hálfs árs fjarveru, og í síðasta
bréfi hafði Eliza sagt að allir
sem vettlingi gátu valdið í þorp-
inu mundu koma og taka á móti
honum á járnibrautarstöðinni,
með lúðrablæstri og fánakveðj-
um. „Það ætti að fagna heim-
um fram um gáfur á þeim tíma,
en hún talaði til dæmis reip-
rennandi bæði latínu og grísku
þegar hún var átján ára gömul,
og auk þess talaði hún margar
mállýzkur Egypta og Litlu-
Asíu-húa. Þrátt fyrir þrjú
hundruð ára bil, er enginn vafi
á því að allmikil óbrigðul ætt-
areinkenni eru með ættmóður-
inni Thais og dóttur í þrettánda
lið eða svo, Kleópötru. Þótt ó-
trúlegt sé, þekkjast fleiri dæmi
um slíkt.
Fornleifafræðingar síðari tíma
álíta að Kleópatra hafi alls ekki
verið nein fegurðardís. Mynd-
ir af henni á peningum frá
þeim tíma virðast staðfesta það.
Það hlýtur því að hafa verið
vegna afburða gáfna, að hún
töfraði menn eins og þá Marcus
Antonius og Gaius Julius Caes-
ar. Endir.
19