Bergmál - 01.11.1956, Síða 38

Bergmál - 01.11.1956, Síða 38
Október-NÓVEMBER B E R G M Á L mig við það lengur. Nú er kom- ið einum of mikið. Enginn skal geta sagt, að ég hafi ekki verið umburðarlynd. Hann er af allt öðru sauðahúsi en ég, steyptur í öðru móti eins og tengdamóðir mín segir. Það er ekkert óeðli- legt við það. Og á meðan þetta er aðeins saklaust daður við einskisverðar stelpur, þá get ég látið sem ekkert sé, enda þótt mér finnist það, innst inni óskiljanlegt og heimskulegt.. En þegar hann fer og hittir Violu Ewers á ný og fer niður á baðströnd með henni án þess að segja mér frá því, og fer á leyni- leg stefnumót með henni á Bað- hótelinu á kvöldin, þá er það áreiðanlega ekki eingöngu sak- laust daður lengur. Og ég fyrir- lít uppistand. Ég rekst á hann, — án þess að eig’a mér nokkurs ills von, — í einum básnum undir svölunum, þar er hann aleinn með henni. Bölvaður þjóns-asninn: „Tanberg forstjóri situr niðri í einum hellinum •undir svölunum ásamt fleira fólki.“ Jú-jú, þar var hann í rauðu ljósi — þar sitja þau í faðmlögum, Terje og----Viola Ewers. Af öllum heimsins kon- um, þurfti það endilega að vera Viola Ewers. Og hann sem hefir svarið .... Nei. Hún beit á neðri vörina, skaut hökunni fram og ljósbláu augun skutu gneistum. Margrét Tanberg var fögur kona og það fór henni vel að reiðast. Ég' verð að tala við tengda- mömmu, hugsaði hún. Beate er skynsöm kona. Og hún er ein- lægasta kona í heiminum. Jafn- vel um sinn eigin son segir hún það sem henni finnst. Þarna sat frú Beate í björtu setustofunni sinni. Það voru að- eins liðnir tveir klukkutímar frá því hún hafði hlustað á frá- sögn Terje sonar síns og nú fékk hún að feeyra útgáfu Mar- grétar af sömu sögu. Margrét talaði mjög rólega og stillilega en öðru hverju varð vart við skjálfta í rödd hennar. Hún horfði -ekki á tengdamóður sína. Vildi ekki láta hana sjá hvernig henni leið. Frú Beate var á 'báð- um áttum. Hún hafði ekki haft tíma til að undirbúa í huganum þá meðferð sem málið yrði að fá. Þetta yrði erfitt mál. Þar sem Margrét hafði ekki viljað hlusta á Terje sjálfan .... þá var mjög ólíklegt að hin ótrú- lega skýring hefði nokkuð að segja, er hún kom frá tengda- mömmu. 36 —

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.