Bergmál - 01.11.1956, Qupperneq 43
B E R G M Á L
1956
„Jú, jú, það er trúlegt," sagði
hann. „Ég hef víst verið indæll,
eða hitt þó heldur. Eru allir for-
naumuðir við mig?“
„Nei, nei, biddu fyrir þér —
öllum fannst þú svo voðalega
skemmtilegur. — Júlli Péturs
varð náttúrlega dálítið súr
þarna um tíma, á meðan setið
var undir borðum. En hinum
strákunum tókst einhvern veg-
inn að troða honum í sætið aft-
ur og lækka í honum rostann.
Ég held að það; hafi enginn við
hin borðin tekið eftir þessu
yfirleitt. Eða að minnsta kosti
ekki nema sumir.“
„Ætlaði hann í mig?“ spurði
hann, „hvað hafði ég jþá gert
honum?“
„Almáttugur! Þú gerðir ekki
nokkurn skapaðan ihlut. Þú
varst alveg ókey. En þú veizt
hvernig apinn hann Júlli lætur,
ef honum finnst einhver vesen-
ast of mikið utan um Ellu.“
„Var ég nærgöngull við Ellu?“
spurði hann. ,,Ég trúi því varla.“
„Nei, nei, ég held nú ekki,“
svaraði hún. „Þú gaspraðir bara
dálítið við 'hana. Og benni
fannst þú vera drep-fyndinn.
Hún skemmti sér kostulega,
þótt hún yrði náttúrlega dálítið
ergileg þarna þegar þú helltir
rjúpnasósunni niður á bakið á
henni.“
„Hvert í logandi! Rjúpnasósu
niður á bak á henni! Herra minn
trúr, hvað get ég gert.“
„Elsku, góði, hún fer ekki að
erfa það við þig til lengdar,“
svaraði hún. „Þú getur bara
sent henni blóm eða eitthvað
svoleiðis. Vertu ekki að hafa
áhyggjur af því — það skiptir
engu.“
„Sei, sei, nei, ég er alveg sam-
vizkulaus,“ svaraði hann, „ég
blæs á það alltsaman — mér
líður svo sem ágætlega hérna í
stólnum. Oh .... Herra minn
trúr, oh .... Herra minn trúr
.... Fann ég kannske upp á
fleiru álíka skemmtilegu til að
skemmta fólkinu með, á meðan
setið var undir borðum?“
„O-ne-ei, þú varst alveg ókey,“
svaraði hún. „Vertu ekki með
þessa ímyndunarveiki. Allir
voru stór-hrifnir af þér. Yfir-
þjónninn var svolítið áhyggju-
fullur um tíma af því að þú
vildir ekki hætta að syngja, en
í raun og veru var honum ekki
eins leitt og hann lét. Hann
sagði bara að hann væri smeyk-
ur um að löggan myndi fara að
derra sig ef það yrði alltof mik-
ill gauragangur, en honum var
41