Goðasteinn - 01.09.2003, Page 66
Goðasteinn 2003
Afdráttarháttur - sléttubönd
Afdráttarháttur er þannig að fyrsti stafur er tekinn af hverju orði í fyrraparti
vísu, þá kemur seinnipartur eða botninn af sjálfu sér. Fyrstu þrjár vísumar hér á
eftir eru einnig sléttubönd.
Stælda, smáða, snúin nauð,
snælda þráða flúin.
Tælda, máða, núin nauð,
nælda ráða lúin. (Höf. ókunnur.)
Skulda stærðir höldum há,
hárum skallar gróa.
Kulda tærðir öldum á
árum kallar róa. (Gísli Konráðsson).
Sléttum hróður, teflum taflið,
teygjum þráðinn snúna.
Léttum róður, eflum aflið,
eygjum ráðin núna. (Sveinn Hannesson frá Elivogum.)
Sveinar krjúpa, svellur móður,
svanir fljúga.
Veinar rjúpa, vellur óður,
vanir ljúga. (Höf. ókunnur.)
Drósir ganga, dreyrinn niðar,
drjúpa skúrir.
Rósir anga, reyrinn iðar,
rjúpa kúrir. (Jóhannes úr Kötlum).
Særður stungum, þeyttur þreyði,
þræddi menga svið.
Ærður tungum, reittur reiði
ræddi enga við. (Ragnar Ágústsson frá Svalbarði. Hún.).
-64-