Goðasteinn - 01.09.2003, Qupperneq 150
Annálar 2002
Goðasteinn 2003
Fellsraúlaprestakall
/
Skarðs-, Marteinstungu-, Haga-, Arbæjar- og Kálfholtssóknir
í Fellsmúlaprestakalli voru sóknarbörn 546 samkvæmt þjóðskrá. í Skarðssókn 103,
Hagasókn 55, Marteinstungusókn 85, Arbæjarsókn 173 og Kálfholtssókn 130.
Allt kirkju- og safnaðarstarf í prestakallinu hefur verið á líkum nótum og undanfarin
ár. Almennar guðsþjónustur voru samtals 37 auk helgi- og bænastunda. 11 börn voru
borin til skírnar, 5 ungmenni fermd, hjónavígslur 2 og 6 samferðamenn kvaddir hinstu
kveðju.
Barnastarf
Barnastarfið í prestakallinu gengur vel og er unnið í samstarfi sóknarprests og skól-
anna. Kemur sóknarprestur vikulega í Laugalandsskóla til nemenda 1- 3. bekkjar sem og
leikskólann yfir vetrartímann og hefur þetta fyrirkomulag gefið góða raun. I þessum
samverum er mikið sungið, og börnin frædd um innihald kristinnar trúar og spjallað uin
eitt og annað sem litlar sálir eru að velta fyrir sér, en stundunum lýkur síðan með bæn.
Auk þess eru barnastundir í guðsþjónustum þegar tök eru á því.
Fermingarfræðsla
Fermingarfræðsla vetrarins hófst með Skógarmótinu um miðjan september, þegar öll
fermingarbörn sýslunnar deildu geði á tveggja daga fermingarbarnamóti á vegum
æskulýðsnefndar prófastsdæmisins. I byrjun októbermánaðar hefjast síðan vikulegir
fræðslutímar að afloknum skóladegi á mánudögum, þar sem farið er yfir bókina Líf með
Jesú, auk annars ítarefnis. Síðan, þegar sól hefur tekið að hækka á lofti hafa Fellsmúla-
og Oddaklerkar síðustu árin slegið sig saman og drifið sig í menningarreisu með ferming-
arhópana sína til Reykjavíkur og eytt þar einurn degi í menningarlegum þankagangi. I
þessum ferðum hefur Alþingi Islendinga verið heimsótt og við notið höfðinglegrar mót-
töku þingmanna okkar úr Rangárþingi, Dómkirkjan skoðuð, rölt um Háskólasvæðið,
farið í bíó og hungrið síðan satt á flatbökustað áður en haldið er heim á leið á nýjan leik.
Sönglíf
Kirkjukórar eru vel starfandi í prestakallinu og sem fyrr eru félagar þeirra, organ-
istarnir og sóknarnefndarfólkið þeir sem leggja til krafta sína úti á akrinum og verður öllu
því góða fólki seint fullþakkað þeirra fórnfúsa starf. Skarðskirkjukórinn starfar undir
leiðsögn Bjargar Hilmisdóttur, Kálfholtskirkjukórinn leiðir í vetur Ingi Heiðmar Jónsson
í orlofi Eyrúnar Jónasdóttur og Hannes Birgir Hannesson stjórnar Arbæjarkirkjukórnum
sem og Marteinstungu- og Hagakirkjukórnum.
Safnaðarhús við Hagakirkju
Safnaðarhús Hagakirkju var vígt sunnudaginn 16. júní. Að aflokinni guðsþjónustu
gengu sóknarnefnd og sóknarprestur ásamt söfnuði og góðum gestum úr kirkju og í
nýreist og glæsilegt safnaðarheimili, þar sem vígsla þess fór fram. Gerðu síðan gestir
kaffiveitingum góð skil, en þær voru í boði sóknarbarnanna. Söfnuðinum bárust margar
-148