Goðasteinn - 01.09.2003, Blaðsíða 199
Goðasteinn 2003
Látnir 2002
einkar laginn við að aðstoða kýr og kindur við burð. Eins var hann eftirlitsmaður með
fjósum í V-Skaftafellssýslu, og vann jafnframt við akstur hjá Kaupfélagi Skaftfellinga. Þá
flutti hann suður til Reykjavíkur og starfaði sem leigubflstjóri og hjá Sláturfélagi Suður-
lands.
Þáttaskil urðu í lífi hans er hann kynntist eftirlifandi eiginkonu sinni Steinunni Auði
Guðnrundsdóttur í Fögruhlíð í Fljótshlíð, fæddri 5. des. 1937. Þau gengu í hjónaband
þann 28. apríl 1962 og var það upphaf langs og farsæls hjúskapar. Þau fluttust í Hvolsvöll
þar senr þau bjuggu um nokkurra mánaða skeið og þar fæddist Guðmundur sonur þeirra,
23. janúar 1963. Þar er hann búsettur, rekstrarfræðingur og starfar sem framleiðslustjóri
Sláturfélags Suðurlands. Dóttir hans og Fjólu Jónsdóttur er Emma Find, f. 26. október
1996. Svavar og Steinunn hófu sfðan búskap í Bjargarkoti í Fljótshlíð þar sem þeim
fæddist dóttirin Sigurlaug þann 30. júlí 1967, hún er búsett í Reykjavík, uppeldis- og
menntunarfræðingur og deildarstjóri nýbúafræðslu í Fellaskóla. Dóttir hennar og Gunnars
Eymarssonar er Petra María f. 23. október 1991. Sambýlismaður Sigurlaugar er Þröstur
Ingólfur Víðisson.
Samhliða búskap í Bjargarkoti var Svavar deildarstjóri hjá Kaupfélagi Rangæinga.
Þau hjón hófu að byggja sér hús í Hvolsvelli og fluttust þangað vorið 1972. Á tímabili
vann Svavar við virkjanaframkvæmdir en síðar við verslunarstörf og akstur hjá Kaup-
félagi Rangæinga. Árið 1976 fluttust Steinunn og Svavar til Reykjavíkur. Þá gerðist hann
deiidarstjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands þar sem hann starfaði í nokkur ár. Þá rak Svavar
söluturn í Reykjavík um árabil ásamt bróður sínum Einari til að byrja með en síðar voru
þau hjón með eigin rekstur og eins vann hann við önnur verslunar- og þjónustustörf.
Svavar fluttist að Fögruhlíð í Fljótshlíð árið 1991 og starfaði hann þá hjá Sláturfélagi
Suðurlands og Kaupfélagi Árnesinga, þar til að hann lét af störfum vegna heilsubrests
árið 1998.
Samband þeirra hjóna var mikið og náið alla tíð og duldist engum sem til þekktu að
þar fóru samhent hjón. Hann var hlýr og nærgætinn heimilisfaðir, umhyggjusamur og lét
sér annt um börnin sín sem nutu föðurkærleika hans í ríkum mæli.
Hann hafði yndi af dýrum og var hestamaður á yngri árum. Hann bjó með kindur,
hænur og hross í Bjargarkoti og var með hesta á húsi þegar hann bjó á Hvolsvelli og
einnig fyrst eftir að hann flutti til Reykjavíkur. Hann naut þess að renna fyrir fisk, var
áhugamaður um alla veiði og leigði til skamms tíma, í félagi við aðra, veiðivatn á Skaft-
ártunguafrétti - Botnlangalón. Þar átti hann margar góðar stundir með fjölskyldu og
félögum.
Svavar var að eðlisfari rólyndur og dagfarsprúður í viðmóti. En hann kunni að gleðjast
á góðri stundu, og var þá hrókur alls fagnaðar. Var músikalskur og unnandi góðrar tónlist-
ar og deildi þeim áhuga með fjölskyldu sinni.
Svavar var traustur maður og gefandi í allri umgengni, áreiðanlegur og staðfastur og
vildi í engu bregðast því er honum var trúað fyrir, enda naut hann vináttu og virðingar
allra þeirra er hann þekktu.
-197-