Stjörnur - 01.05.1950, Page 10

Stjörnur - 01.05.1950, Page 10
Svo settist hann niður og fór að yfirvega þetta sem skeð hafði. Strax morguninn eftir varð hann að fá sér tvo einvígisvotta. Til hverra ætti hann að leita? Hann fór í huganum yfir allan kuim- ingjahópinn til að finna tvo nógu rólynda menn, og sem honum væri mestur heiður að hafa fyrir einvígisvotta. — Að lokum nam hann staðar við tvö nöfn, Markis de La Tour Noire og Bourdin of- ursta. Hinn fyrri var af gamalli aðalsætt, en hinn síðari hafði get- ið sér mikla frægð sem hermaður. Nöfn þeirra mundu taka sig vel út í blöðunum. Hann fann nú að hann var ákaflega þyrstur, og drakk þrjú glös af vatni, hvert á eftir öðru, og fór svo aftur að ganga til og frá um herbergið. Hann fann að hann hafði sterkan vilja. Ef hann sýndi sig fastákveð- inn í því að heimta hinum ströng- ustu reglum fylgt, í stuttu máli, veldi hann einvígi upp á líf og dauða, mundi mótstöðumaður hans tvímælalaust hætta við ein- vígið og biðja fyrirgefningar. Hann tók nafnspjaldið, sem hann hafði tekið úr vasa sínum og hent á borðið, og las það, en það hafði hann gert strax á veitinga- húsinu og vio hvert einasta götu- ljós á leiðinni heim. — Georges Lamil, Rue Moncey 51. Meira stóð þar ekki. Hann grandskoðaði bókstafina, honum fannst þetta vera afskap- lega leyndardómsfullt, og hlaut að hafa einhverja dula meiningu. Georges Lamil. Hvaða maður var það? Hvað gerði hann? Hvers- vegna hafði hann starað svona á konuna? Var það ekki óskaplegt, að ókunnur maður, sem hann vissi engin deili á, skyldi svona allt í einu verða friðarspillir í lífi hans. Og Signoles hrópaði ennþá einu sinni: — Þessi óþokki. Eftir það stóð hann án þess að hreyfa sig, og' horfði á nafnspjald- ið, eins og hann hefði aldrei séð það áður. Hann fann til reiði við þetta litla pappírsblað, og hann fann til óánægju yfir því sem fyrir hafði komið. Hann tók hníf og rak hann í bókstafina, eins og hann væri að stinga einhvern ó- vin. Og nú átti hann að heyja ein- vígi. Hvort var betra fyrir hann að velja sér sverð eða skammbyssu. Hann leit svo á að órétturinn hefði verið sér sýndur, og hann hefði því rétt til að velja vopnin. Ef harm veldi sverðið, átti hann minnst á hættu, en ef hann veldi skammbyssu voru allar líkur til að mótstöðumaður hans yrði hræddur. Það er mjög sjaldgæft, að einvígi með sverði yrði að fjör- tjóni, þar sem mótstöðumennirnir gæta þess vandlega að koma ekki svo nálægt hvor öðrum, að 10 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.