Stjörnur - 01.05.1950, Síða 22
um hefðbundnar venjur. Hótanir
og mótmæli mun ég hafa að engu.
— En auðvitað geri ég ekkert, sem
brýtur í bága við samþykktir
stjórnar óperunnar.
Þessi orð hafa ýmsir rifjað upp
síðustu vikurnar. Rudolf Bing hef-
ur ráðið til Metropolitanóperunn-
ar að nýju hina miklu söngkonu
Norðmanna, Kristinu Flagstad.
Hún var fyrst ráðin við óperuna á
árunum fyrir stríðið og fyrstu ár
styrjaldarinnar. En vegna sam-
bands hennar við nazista í Noregi
varð hún um árabil að hverfa úr
opinberu lífi og var útskúfuð —
ekki sízt heima í Noregi.
Kristin Flagstad var gift ill-
ræmdum kvislingi í Noregi, sem
lézt í fanelsi Norðmanna á eftir-
stríðsárunum, meðan hann beið
dóms síns. I rauninni verða engar
sakir sannaðar á Kristinu, aðrar
en þær, að hún skyldi ekki ganga
í berhögg við vilja og skoðanir
manns síns, og að hún neitaði að
snúa við honum bakinu eftir að
á hann höfðu sannast ýmiss af-
brot, er hartn vann í þjónustu
þjóðverja á stríðsárunum.
Kristin lét afskiptalaust, það
sem var að gerast í heimalandi
hennar. Hún afneitaði ekki nazist-
um og' kvislingum, hvorki fyrr né
síðar, en vegna hjúsk^par hennar
við einn af foringjunum hlaut hún
að teljast í hópi föðurlandssvikar-
anna, að dómi flestra Norðmanna.
Hlutlausir áhorfendur hljóta
samt að viðurkenna, að hún átti
örðugt val. Ast hennar til eigin-
mannsins, og traust það er hún
bar til hans, villtu henni sýn. Og
flestir hljóta að virða það við
hana, að hún sneri ekki baki við
manni sínum, er hann var yfirbug-
aður og beið dauðans, úr því að
hún bar ekki gæfu til þess áður en
það var um seinan.
Norðmenn dæmdu Kristinu
Flagstad hart, vegna þess að hún
hafði áður verið svo mjög elskuð
og virt, bæði heima og erlendis.
Dómstólar fjölluðu ekki um mál
hennar, en hún fékk ekki að
hverfa úr landi. Henni bárust
tilboð, hvaðanæfa að úr heimi, um
að koma og halda söngskemmtan-
ir, — hún er ein vinsælasta söng-
kona, sem nú er uppi — en hún
varð að hafna öllum slíkum boð-
um. Ein og yfirgefin varð hún að
hýrast á heimili sínu. Hún fékk
ekki að syngja. Hljómplötur henn-
ar, sem svo vinsælar voru í Nor-
egi áður, voru aldrei leiknar í
norska útvarpið, flestir vinir
hennar og fornir aðdáendur höfðu
snúið við henni bakinu.
Loks mun Norðmönnum hafa
þótt vera komið nóg. Kristine
Flagstad hefur yfirgefið Noreg.
Nú er hún komin aftur til Banda-
ríkjanna og' eitt af fyrstu embætt-
isverkum hins nýja forstjóra
Metropolitanoperunnar er að ráða
22 STJÖRNUR