Stjörnur - 01.05.1950, Qupperneq 30

Stjörnur - 01.05.1950, Qupperneq 30
hendur til Los Angeles, til þess að reka sjálf réttar síns og sækja dóttur sína. STROMBOLIMYNDIN er stöð- ugt sýnd við mikla aðsókn í Ame- ríku, enda þótt allir, sem um kvik- myndir skrifa, viðurkenni, að hún sé hvorki fugl né fiskur. Þótt kostnaðurinn við myndina væri mikill, fékkst hann greiddur í fyrstu vikunni, sem myndin var sýnd, og er slíkt algjört einsdæmi í kvikmyndasögunni. Lítur helzt út fyrir, að þetta verði mesta gróðamynd ársins. Ingrid fékk 182.000 dollara fyrir sinn leik og veitti dr. Lindström peningunum viðtöku, eða réttara sagt 154.000 dollurum, því hitt fór í skatta og opinber gjöld samkvæmt ame- rískum lögum. En þetta er samt dálaglegur skildingur og hefur Ingrid mótmælt því að dr. Lind- ström skuli halda þessu fé. En hann segir að það sé aðeins til bráðabirgða. Ingrid segir í kröfuskjali sínu, er hún hefur nýlega látið leggja fram við dómstólaná, að hún hafi að mestu leyti greitt kaupverð húss þeirra hjóna og auk þess lát- ið gera það í stand fyrir 12.000 dollara. Þá kveður hún og vera sína eign: þrjár bifreiðar, húsgögn, dýrgripi, loðkápur og aðra dýr- mæta muni, þar á meðal 29.000 dollara í ríkisskuldabréfum. að ó- nefndum greiðslum fyrir leik hennar í kvikmyndunum „Jeanne d’Ac“ og „Under Capricom11, sem dr. Lindström hefur veitt móttöku í fjarveru hennar. NÝLEGA kom Ingrid Bergman- máhð til umræðu í sjálfu þingi Bandaríkjanna í Washington. Þingmaður að nafni Edwin C. Jo- hnson, sem frægur er m. a. fyrir það, að hann vár sá fyrsti, sem kvað upp úr með það opinberlega í sjónvarpsviðtali, að Bandaríkin gætu framleitt spreng'ju, sem væri þúsund sinnum öflugri en sú fyrsta, svo Rússum væri betra að hafa sig hæga. Þá fékk hann skömm í hattinn fyrir fram- hleypnina. Nú vekur hann aftur athygli á sér, með því, að vilja láta setja lög um að sérstakt leyfi þurfi til þess að leika í kvikmynd- um í Bandaríkjunum, „svo að hægt sé“, eins og hann komst að orði „að koma í veg fyrir það, að siðleysingjar á borð við Ingrid og Ritu Hayworth geti grafið undan kristilegum siðgæðishugsjónum amerísku þjóðarinnar. Engin ætti að fá atvinnuleyfi í kvikmynda- iðnaðinum nema hann geti sann- að það fyrir sérstökum dómstóli, að hann hafi ekki gert sig sekan um siðferðisbrot.“ Heldur var nú þessari tillögu þingmannsins tekið fálega og æstist hann þá um allan helm- 30 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.