Stjörnur - 01.05.1950, Page 32

Stjörnur - 01.05.1950, Page 32
BARNAHÁTÍÐ SÚ, sem haldin er á hverri hvítasunnu í Molschle- ben í Þýzkalandi, er vafalaust hið einkennilegasta hátíðahald, sem ennþá tíðkast til sveita. Það er minningarhátíð og á að rekja upp- haf sitt til hinna hræðilegu tíma þrjátíu-ára-stríðsins. Árið 1642 eða 44 segir sagan, sat hershöfðingi óvinahersins um þorp þetta, er áður var svo mjög aðþrengt af setuliðsgistingum, fjárkúgun og allskonar yfirgangi, að íbúarnir voru orðnir skepnu- lausir að heita mátti. Hinn harð- Barnahátíð úðugi hershöfðingi hótaði þeim öllu illu og sór þess eið, að hann mundi ekki láta stein yfir steini standa ef sér væri ekki færðir 200 skjóttir hestar og allir úr sama stóði. Voru þorpsbúar nú í mikl- um vanda staddir og vissu ekki hvað til brags skyldi taka, en þá datt þeim ráð í hug. Reiðprik þau, sem krakkar þeirra léku sér að, voru einmitt mislit og kölluð „Skjónar“ og stóð ekki á löngu að útvega 200 slíka reiðskjóta. Voru þeir allir gerðir úr sama trénu, tegldir og litaðir og því næst riðu krakkarnir þeim til herbúða hers- höfðingjans. Hershöfðinginn viknaði þegar hann leit þennan hóp og heyrði bænarákall barnanna og hét því náðarsamlega, að hann skyldi þyrma heimilum þeirra. Sagt er, að herramaður sá, sem þá átti Molschleben herragarð, hafi stofn- að til hátíðar þessarar, sem börnin hlakka til enn í dag, til minningar um atburðinn. Á hátíð þessari fara drengir um allt þorpið með hljóðfærasveit í broddi fylkingar, en þorpið er allt skreytt grænu laufi. Yngri dreng- irnir eru allir ,,ríðandi“ á hinum fornfrægu Skjónum sínum, en í Þýzkalandi * eldri drengimir hafa hjálm og spjót að vopnum. Eru fánar bom- ir fyrir þessari glæsilgu fylkingu, en hún heimsækir alla heldri menn bæjarins, prestinn, skóla- stjórann og bæjarfógetann og hrópar liúrrá fyrir utan hús þeirra og fær sætabrauð að launum. Einnig er það gömul venja að fara til myllunnar, sem eitt sinn heyrði til herragarðinum. Sérstaklega er þó förinni heitið til bökunarhússins og þar fengið sér feiknin öll af allskonar brauði, en þar er líka „Skjónunum11 slátr- að og þeir feng'nir bakaranum í eldinn og endar svo hátíðin að lokum með barnaballi. 32 8TJÖRNUR

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.