Stjörnur - 01.05.1950, Qupperneq 33
Jean Pierre Aumont
Hetja og leikari
JEAN PIERRE AUMONT er
fæddur í París og er því Frakki
að ætt og uppruna. Þó er hann
bjartur yfirlitum, bláeygður, ljós-
hærður og full sex fet að hæð. En
þótt útlitið gæti gefið til kynna
að hann væri kominn af Göngu-
Hrólfi eða köppum hans, er blóð-
ið franskt, ólgandi heitt og á-
stríðuríkt, skapið mikið, fjörið
svellandi.
Hið upprunalega ættarnafn
hans er Villiers, en Aumontnafnið
er úr móðurættinni og tók hann
það sem listamannsheiti. Hann var
settur í frægan leikskóla á Signu-
bökkum og fékk hinn ágætasta
einkakennara. Og hann hafði ekki
verið lengur við nám en aðeins
tvö ár, er hann fékk sitt fyrsta
hlutverk við aðalleikhús Parísar,
þá aðeins 17 ára að aldri. Hann
gat sér þegar hið bezta orð. Eftir
það stundaði hann námið með
frægustu farandleikflokkum
Frakklands, er fóru á milli stór-
borga landsins og til nýlendu-
borga í Túnis og Algier.
Þess var svo ekki langt að bíða
að frönsku kvikmyndafélögin
tækju Jean Pierre Aumont í
þjónustu sína. Hann var settur í
aðalhlutverk við hliðina á stjörn-
um eins og Simone Simon, Onnu-
bellu, Jean Gabin, Danielle Darr-
ieux, og fóru sumar af þessum
myndum sigurför um heiminn,
eins og t. d. „Hotel de Nord“.
Þegar stríðið hófst 1939 var
Jean Pierre Aumont nýbyrjaður
í mynd ásamt Mörtu Eggerth. En
er herlúðrarnir gullu þvoði hann
af sér leikkremið og lét skrá sig til
herþjónustu. Hann var skipaður
undirliðsforingi í skriðdrekadeild
og tók þátt í orustunni við Sedan.
Þjóðverjar innikróuðu hersveit-
ina, en Jean var meðal þeirra, er
tókst að komast undan. Hann vék
þó ekki af hólmi fyrr en öll skot-
færi voru til þurrðar gengin. Hann
komst með skriðdrekann sinn til
STJÖRN'UR 33