Stjörnur - 01.05.1950, Qupperneq 34

Stjörnur - 01.05.1950, Qupperneq 34
nýrra varnarstöðva. En nú var sókn Þjóðverja svo ör að Frakkar fengu við ekkert ráðið og gáfust upp, eins og kunnugt er. Jean Pierre Aumont ákvað þá að hverfa úr landi og tókst honum eftir mikla hrakninga og mann- raunir að komast til Bandaríkj- anna. Þrem dögum eftir að hann kom til Ameríku hafði hin fræga leik- kona og leikhússtýra, Katharine Corrwell ráðið Jean Pierre Aum- ont í þjónustu sína. Fór hann með leikflokki hennar sigurför um Bandaríkin. Við sýningu í San Fransiskó var viðstaddur einn af leikstjórum Metro-Goldwyns- kvikmyndafélagsins, og bauð hann Jean þegar hlutverk í stórmynd, er hann hafði á prjónunum, enda var Jean þá orðinn svo leikinn í enskum framburði eftir nokkurra mánaða dvöl í vesturheimi, að vart mátti greina á mæli hans að hann væri útlendingur. En nú voru Frjálsir Frakkar farnir að sækja í sig veðrið, og hugðu á sókn. Þegar Jean Pierre Aumont hafði lokið við fyrstu amerísku myndina þáði hann ekki tilboð um leik í nýrri, en fór til franska sendiráðsins í New York og bauð de Gaulle-mönnum þjón- ustu sína. I stað þess að senda hann til vígstöðvanna strax, eins og Jean hafði mælst til, var hon- um skipað að hverfa aftur til Hollywood og falið að leika þar aðalhlutverkið í fransk-amerískri kvikmynd, er fjallaði um frelsis- baráttu Frakka. Þegar þeirri kvikmynd var lok- ið héldu Jean Pierre Aumont eng- in bönd í Bandaríkjunum, hann vildi komast heim til frönsku víg- stöðvanna. Hann var þó ekki sett- ur í franska herdeild heldur skip- aður sem franskur túlkur og miðl- ari með amerískri deild og annað- ist hann samband hennar við franskar herdeildir. Hann var því á sífelldu ferðalagi milli herdeild- anna, og oft þar sem hættan var mest, þótt hann tæki í rauninni ekki beinan þátt í bardögunum. Hann sýndi mikla dirfsku og snarræði á þessum erfiðu ferðum og fara af því margar sögur, þótt ekki verði þær skráðar hér. En í einni slíkri glæfraför munaði minnstu að hann léti lífið. Hann var þá á ferð ásamt frönskum hershöfðingja og stjórnaði sá síð- arnefndi jeppabílnum, sem þeir óku í. Vegna sprengju, er Þjóð- verjar höfðu skotið á veg einn, þurftu þeir að fara yfir smábrú, sem ekki var ætluð bílaumferð. Hún reyndist líka of veik og brotnaði undan bílnum. Hershöfð- inginn lét þarna líf sitt, en Jean slasaðist, handleggs- og fótbrotn- aði, en komst þó furðu fljótt aftur til heilsu. í 20 mánuði var Jean Pierre 34 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.