Stjörnur - 01.05.1950, Side 36
— Þetta er inflúensa, sagSi
Martin gamli læknir. Eg átti von
á því. Ég er alveg hissa á, að allur
kvikmyndaheimurinn skuli ekki
lig'gja í inflúensu í þessu tíðar-
fari. Fólkicl er bakað í þessu
sterka ljósi og öslar svo snjóinn
heim til sín á eftir. Ég býst við, að
hann verði að liggja í viku.
— En er hann mikið veikur?
Martin læknir hló gegnum rost-
ungskampinn og tók í öxlina á
henni. Hann var gamall húsvinur
og gat leyft sér að vera kumpán-
legur við þau hjónin.
— Nei, nei — það eru engin lík-
indi til að hann yfirgefi þennan
heim, ef það er það, sem þér eigið
við! Hann er hraustur eins og
hestur — og það eruð þið öll. Það
getur hugsazt að hann verði rugl-
aður í einh eða tvo daga — tali í
óráði, meina ég — en þér skuluð
ekki vera hrædd við það. Hann
rausar auðvitað mestu fælu, ein-
tóma vitleysu. En hjúkrunarkon-
an verður að sjá um, að hann
sparki ekki af sér yfirsænginni
eða fari fram á gólf. Hann kemst
bráðega á -fætur aftur. Gamh
læknirinn tók af sér gleraugun
og stakk þeim í húsin. Svo leit
hann allt í einu upp og spurði: —
Hefur hann nokkrar sérstakar á-
hyggjur.
— Sérstakar------áhyggjur?
endurtók Edith forviða.
— Já ,mér fannst einhvernveg-
inn, að það væri eitthvað, sem
lægi þungt á honum. Það er
kannski ekki annað en inflúensan
— hún gerir suma daufa í dálkinn.
— Kannski að hann hafi áhyggj-
ur út af kvikmyndinni, sagði Ed-
ith. Það getur verið að veikindi
hans tefji myndatökuna um tíma
— og ég veit, að þeir höfðu ein-
mitt verið að kosta kapps um, að
fullgera myndina sem fyrst.
— Ætli það sé ekki hægt að
láta annan mann taka við hlut-
verkinu hans — og svo held ég
að félagið hefði efni á að tapa svo-
litlu, ef því væri að .skipta. Þér
megið þakka guði fyrir, að maður-
inn yðar skuli ekki vera einn af
þessum svokölluðu stóru stjörn-
um.
— Það geri ég líka, sagði hún
og brosti.
— Þessir frægu leikarar lifa
hundalífi, hélt læknirinn áfram.
Ekkert heimilislíf, engin ró, eng-
inn friður! Frank á miklu betra en
þeir — þó að hann leiki ekki nema
miðlungshlutverk. Að vísu græð-
ir hann aldrei milljónir, en hvað
ætti hann líka við þær að gera?
Hann hefur góðar og vissar tekj-
ur og þær endast ykkur ævilangt.
Og auk þess er hann leikari, reglu-
legur leikari, en ekki útstoppuð
brúða, með laglega snoppu. Mart-
in læknir greip hattinn sinn og
bjóst til að fara. — Hvað er að
frétta af börnunum?
36 STJÖRNUR