Stjörnur - 01.05.1950, Side 42

Stjörnur - 01.05.1950, Side 42
hún átti að leika með — svo íalleg og yndisleg. — Svona leit ég út, þegar ég var ung, hugsaði Edith. Frank hefur orðið ástfanginn af endurminn- ingunni um það, sem ég var. — Þögn! Þögn! var nú kallað. Og allir hættu að tala saman. Jack Vallance hneigði sig og fór frá Edith, en hún stóð og beið. Hana langaði til að heyra rödd Betty, þegar hún færi að leika. Svo hófst myndatakan. Sterku ljósi var varpað að Betty og Keith Russel, sem stóðu viðbúin. Keith, sem var í kvöldsopp, settist nú í hægindastól eins og harm væri dauðþreyttur. Málning og duft hafði breytt honum í gamlan, hruman mann. En Betty var ung og hraust. — Gott —- byrjið, sagði leik- stjórinn. Maðurinn í hæginda- stólnum stundi. — Eruð þér hérna ennþá, lækn- ir, hvíslaði hann með veikri rödd. — Ég veit að ég dey, læknir, yður þýðir ekkert að reyna að villa mér sjónir! Ég — ég verð að ráðstafa öllu áður en ég dey. Finnst yður, að ég' ætti að segja konunni minni frá því? — Stopp! hrópaði leikstjórinn og baðaði öllum öngum. — Þetta er hraksmánarlega leikið, Keith — afleitt. Þér sáuð, þegar Layton lék þetta atriði, Keith. Leikið þér eins og hann gerði, maður! Leggið tilfinningu í leikinn — það lá við að Frank kæmi mér til að gráta, þegar hann lék þetta. Hann hélt áfram að tauta og fór svo þangað, sem Edith stóð. Tárin runnu niður kinnarnar á henni. — Hvað gengur að yður? spurði hann forviða. — A ég að sjá grát- andi kvenfólk í þokkabót. Það er bezt að þér farið. — Þér verðið að afsaka mig, sagði Edith og hló og grét í einu. — En mér var ómögulegt ao gera við því. Og svo fór hún. HUN minntist ekkert á þetta við Frank fyrr en hann var kom- inn á fætur aftur. Hann kom nið- ur í stofuna í fyrsta skipti eftir veikindin, sama daginn sem þau áttu von á börnunum heim í fríið. Edith ætlaði á stöðina til að taka á móti þeim, en áður ætlaði hún að segja manninum sínum frá grunsemdunum. Tilhugsunin um þennan óverðskuldaða grun píndi hana — það var bezt að meðganga strax. Hún fór inn í dagstofuna til hans. Hann sat í hægindastól, al- veg eins og Keith Russel hafði gert. Sat og starði í arineldinn. Andlitið var raunalegt og þreytu- legt. — Yerðurðu ekki of sein á stöð- ina, ef þú ferð ekki strax, Edith? 42 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.