Stjörnur - 01.05.1950, Blaðsíða 46

Stjörnur - 01.05.1950, Blaðsíða 46
hans margar hálfgleymdar bernskuminningar. Martha og hann höfðu oft farið hingað, er þau voru böm. En honum var ekkert um þetta ferðalag nú. Hann kærði sig ekkert um að rifja upp forn kynni, sem gætu haft áhrif í þá átt að tengja hann við hennar borg. Hann vildi ekki láta minna sig á vináttu þeirra Mörthu í æsku þeirra. Hann vissi til hvers hún hafði leitt hann hingað. Hann reyndi að vera ó- snortinn, en samt fann hann að hann var það ekki. Fegurð og yndis- þokki þessarar æskuvinkonu hans, og allt sem hún bauð honum, gerði hann órólegan — og tvíráðan. — Það er útsýnin héðan, sem þér finnst fegurst, sagði hann um leið og þau staðnæmdust. Víst er þetta fallegt, en fjarlægðin veldur því að borgin virðist svo óraunhæf, eins og mynd á póstkorti. — Nei ,sagði hún, og andlit hennar ljómaði, ekki óraunhæf heldur einmitt svo raunveruleg. Eða svo finnst mér. Ég sé, að þú brosir, Sam, en það, að eiga eitthvað, veitir alltaf sjálfstraust og máttarkennd. Ef þú ættir það í borginni sem ég á, myndir þú skilja mig. — Ivers, Ivers, Ivers, hvíslaði hann brosandi, eins og annars hugar. En þetta kom illa við hana. Henni féll miður að heyra ættarnafn frænku sinnar. En það var ekki einungis það. Undarlegur glampi var í augum hennar. — Ef einnhver spyr mig að heiti, sagði hún, þá er ég vön að segja: Ég heiti Martha Smith. Ekki Ivers, hugsaði Sam, ekki O’Neil, — heldur Martha Smith, dóttir verkamannsins í stálverksmiðjunni, stéttarbróður föður míns. Það var sú Martha, sem hann þekkti, það var litla stúlkan, sem hann hafði leikið sér við. Allt í einu fann Sam brunalykt. Hann þefaði í allar áttir. — Finnur þú ekki brunalykt, Martha?, spurði hann. Við verðum að vita hvc. pað er. Hann hélt inn í skóginn, þar sem honum virtist lyktin koma frá. Hann fann brátt staðinn. Það var í hlóðum, sem gerðar höfðu verið í tjaldstæði. — Hér hafa verið börn í Indíánaleik. Þau eru farin heim, en hafa ekki kæft eldinn, sagði hann og fór að trampa á kulnandi glæðunum. — Nei, lofðu því að vera, Sam, hrópaði hún. Lofðu því að brenna. Mannstu ekki eftir því þegar við fórum hingað og kveiktum bál? — Jú, ætli ég' muni það ekki, sagði hann. — Það er svo gaman að eldi, sagði hún. 46 STJÖRNUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Stjörnur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.