Stjörnur - 01.05.1950, Side 55

Stjörnur - 01.05.1950, Side 55
ins. Féllst presturinnn á það og kom kona fangans með það á til- teknum tíma og' var barnið skírt við hátíðlega athöfn. Tveir með- fangar föðursins voru skírnar- vottar og sálmasönginn önnuðust afbrotamennirnir með mestu prýði. I Ankara hefur tyrknesk stúlka aðeins 11 ára að aldri fætt barn, var það fullburða og gekk fæð- ingin vel. Þetta þykir mikið und- ur, sem vonlegt er og telja lækna- vísindin þetta algjört einsdæmi. k I Kaupmannahöfn var 46 ára g'ömul kennslukona nýlega dreg- in fyrir lög og dóm og ákærð fyrir að hafa tælt til kynferðismaka við sig 16 ára gamlan nemanda sinn. Rannsakað mun verða hvort hún hefur haft slík mök við fleiri af námssveinum sínum, en á því leikur grunur. I febr. mánuði s. 1. lést í borg- inni Bergamo á Italíu áttatíu ára gamall maður dr. Ferdinato Pa- voni að nafni. Honum hafði ekki komið dúr á auga í sextíu ár. Læknavísindin stóðu ráðþrota gag'nvart þessu undri. Allt sem reynt var til að hjálpa honum kom fyrir ekki. Gamli maðurinn hafði unnið eins og berserkur alla sína ævi, því sælastur var hann þegar hann var örmagna af þreytu, þá fekk hann að njóta hvíldar um nætur þótt ekki væri um eiginlegan svefn að ræða. Hann dó saddur lífdaga, því þessi eilífa vaka var honum mikil kvöl. Þessa^ fréttir eru allar teknar úr sœnska stórblaðinu Dagens Nyheter jan.—febr. ’50 „Karl bað mig að gera sig' að hamingjusamasta manni í heimi og giftast sér.“ „Og hvort ætlar þú heldur að gera?“ k Ung stúlka, sem giftist mjög gömlum manni, sagði sér til af- sökunar: „Ef þér væri boðin ávís- un, sem hljóðaði upp á milljón krónur, þá mundir þú ekki hika til þess að athuga dagsetninguna á ávísuninni.“ ☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆ ★ STJÖRNUR kvikmvnda og skemmtirit. / ö flytur myndir frægra og vinsælla kvik- myndaleikara, austan hafs og vestan, ævi- söguágrip þeirra, kvikmyndafréttir, sög- ur og annað skemmtiefni. Blaðið kemur út mánaðarlega 12 sinnum á ári. Verð hvers lieftis kr. 5.00 í lausasölu. Fastir áskrifendur, sem senda fyrirframgreiðslu fá árganginn fyrir 50.00. Ritstjóri Jón Jónsson, Steinum við Rvík. Afgreiðsla í Bókaverzlun Kristjáns Kristjánssonar, Hafnarstræti 19, sími 4179. STJÖRNUR 55

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.