Stjörnur - 01.04.1951, Qupperneq 4

Stjörnur - 01.04.1951, Qupperneq 4
I gamni og alvöru, vísur eftir ★ K.ÁTNN ★ 1930 var gefin út bók er nefndist Vest- an um haf, og flutti sýnishorn af ljóðtun og sögum Vestur-íslendinga. Þar var auð- vitað Káinn, en svo illa hafði tekizt til við prentun, að svaftur blettur var á nef- inu á mynd hans í bókinni. Þá kastaði liann fram þessari stöku: Þið senduð mér bókina bundna í skinni, með blettinn á ncfinu — geymdan þar inni. Ég hafði' ekki mikil af höfðingjum kynni, en heiðraði landið með fjarveru minni. Sigurður Nordal var á ferð í Vestur- heimi 1931. Langaði hann til að ná fundi Káins, cr hann hafði mikið dálæti á, og varð það úr, að þeir mæltu sér mót í Winnipeg. Þurfti Káinn að fara til móts- ins langan veg. Gert var ráð fyrir að hann myndi þurfa að sitja í veizlum með pró- fessornum og kvartaði Káinn undan því, að hann væri ekki skrýddur brúðkaups- klæðum, fjósamaðurinn frá Dakota. Ekki Iét hann þetta þó hefta för sína, en orti í tilefni þessa: Ef ég fer, þá fer ég ber, ég ferðast cins og Gandhi. Þekktur er ég, heima og hér, holdi klæddur andi. Þetta var á þeim árum, sem offram- leiðsla í Bandaríkjunum var sem fræg- ust. Og. cr menn spurðu Káinn eftir nýj- um vísum, svaraði hann, að hann færi eft- ir boði yfirvaldanna um að minnka fram- Ieiðsluna, enda væri sín framleiðsla orð- in svo að segja engin. Út af því hafði hann gert þessa vísu: Skálda minnstur fyrst ég fann. frekar þó sé skrítið, eina kúnst, sem enginn kann, að yrkja nógu lítið. Káinn er fæddur á Akureyri, en fór ungur utan. Til vinar síns Tryggva Aðal- steins scndi hann bók sína Kviðlinga og ritaði á þá þessa vísu: Mér.er eins og öðrum fleiri, ættjörð týnd og gleymd, samt er gamla Akureyri enn í huga geymd. Fjalla-Eyvindur Jóhanns Sigurjónssonar hefur verið leikinn víðsvegar um íslend- ingabyggðir Ameríku. Einhverju sinni horfði Káinn á slíka sýningu. Þá varð honum liugsað heim til íslands og kast- aði fram þessari vísu: Orór hvarflar andi minn upp til reginfjalla. Takið mig í útlegð inn, Eyvindur og Halla. Um heimþrá sína hann svona: Kæra foklin kennd við snjó, hvað ég fegin yrði, mætti holdið hvíla í ró hcima í Eyjafirði. 4 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.