Stjörnur - 01.04.1951, Side 10
með augun full af tárum. Þetta
var einkabarn hennar, sem nú
ætlaði að yfirgefa hana — og það
með þessum hætti.
— Vertu sæl, elsku móðir mín!
Þú veizt ekki hversu mig tekur
það sárt að hryggja þig, en þú
hlýtur að skilja, að ég verð að
fara. — Nei, gráttu ekki, elsku
mamma! Eftir nokkur ár kem ég
aftur, og þá lagast þetta allt sam-
an.!
— Já, við skulum vona það,
elsku drengurinn minn. Vertu
blessaður og sæll!
Um leið og hún faðmaði hann
að sér, hvíslaði hún:
— Bíddu augnablik fyrir utan,
ég hef nokkuð, sem ég ætla að
gefa þér.
Hann faðmaði hana enn einu
sinni að sér og flýtti sér svo út úr
stofunni.
I dyrunum sneri hann sér við
og sagði:
— Vertu sæll, faðir mann!
Jens sagði ekki neitt, en hann
átti í harðri baráttu við sjálf-
an sig, því að drengurinn var
augasteinninn hans, og það hafði
aldrei verið ætlun hans, að þetta
færi svona. Hann hafði haldið, að
þetta væri aðeins lauslegt daður
hjá Hans, sem hann gæti komið
í veg fyrir með hótunum og
hörku. En þegar hann sá, að
drengnum var alvara, gat hann ó-
mögulega fengið sig til þess að
láta undan, hversu sárt sem hon-
um þótti það.
Þegar Hans kom út, gekk hann
bak við húsið. Móðir hans kom
strax út á eftir honum og lagði
litla öskju í lófa hans.
— Taktu við þessu, drengurinn
minn. Það eru nokkrir aurar, sem
ég hef sparað saman, en ég þarfn-
ast þeirra ekki. Þú hefur meiri
þörf fyrir þá.
Það komu tár í augun á Hans,
er hann sá þennan vott um inni-
lega ást og umhyggju móðurinn-
ar. Hann ætlaði að þakka henni,
en hún greip fram í fyrir honum:
— Fötin þín skal ég hafa til, svo
þú getir sent eftir þeim seinna í
dag. Hún hlustaði augnablik. Nú
kemur faðir þinn. Vertu blessað-
ur og sæll, hjartkæri drengurinn
minn, og guð veri með þér!
Hann var dapur í huga, þegar
hann kom í krána. — Karen
fleygði sér í faðm hans og sagði,
að hún elskaði hann og að hún
skyldi reynast honum trygg og
bíða eftir honum, hversu lengi
sem hann yrði í burtu. Þá hurfu
hinar döpru hugsanir og honum
sýndist framtíðin aftur björt og
fögur.
Næsta dag fór Hans til Ham-
borgar, og þaðan lagði hann af
stað í langferð út í heiminn.
★
ÞAÐ VAR myrk og köld nóv-
embernótt. Vestanstormurinn
10
###