Stjörnur - 01.04.1951, Blaðsíða 24
MONTGOMERY CLIFT hefur
aðeins verið sýnilegur í tveimur
kvikmyndum og hefur þó þegar
aflað sér stjörnufrægðar. Vin-
sældir hans eru ótrúlega miklar.
Sagt er að kvenstjörnur í Holly-
wood sækist mjög eftir því að fá
Clift fyrir mótleikara og það ekki
síður þær allra frægustu, en hin-
ar yngri. En Montgomery Clift
hefur ekki ginið við hverju hlut-
verki, sem honum hefur boðizt.
Hann er svo vandlátur, að hann
er kallaður kræsnasti leikarinn í
Hollywood. Hann segir:
— Hversvegna ætti ég að vera
að eyða dögum mínum í að leika
í myndum, sem ég hef engan á-
huga fyrir, þegar ég get látið mér
líða prýðilega í gildaskálum, sam-
kvæmum eða hvar á jarðarkringl-
unni sem ég vil? Ég á enn drjúg-
ann skilding eftir af launum mín-
um fyrir síðustu myndirnar, og
svo get ég komið fram í sjónvarpi.
Ég athuga gaumgæfilega öll kvik-
myndatilboð, sem mér berast og
þegar það kemur, sem mér hent-
ar, tek ég því. — Ein, í mesta lagi
tvær kvikmyndir á ári er nóg fyr-
ir mig.
Nýlega hefur verið frá því
skýrt, að Montgomery hafi tekið
tilboði um að leika aðalhlutverk-
24 STJÖRNUR