Stjörnur - 01.04.1951, Qupperneq 34
var um megn að sýna mótþróa. Það var sem hún ætti ekki leng-
ur neinn vilja, en hans vilji var svo sterkur.
NOKKRUM dögum síðar sat Karen á klettasnös einni, allfjarri
húsi þeirra, og horfði út á sjóinn. Antoníó var á leiðinni til hafs.
Enn sá hún móta fyrir bát hans. Hann hafði verið svo glaður og
fagnandi um morguninn, þegar hann borðaði dögurð sinn, áður en
hann hélt á sjóinn. Hann virtist svo óumræðilega hamingjusamur
þessa síðustu daga. Karen gat ekki skilið þetta. Að vísu hafði hann
borið sigur af hólmi, hann hafði brotið mótþróa hennar á bak aftur.
En hún gat ekki skilið, að það færði honum hamingju, að buga vilja
hennar. Hann hlaut þó að sjá og skilja, að hún beygði sig aðeins
í þögn og þolinmæði, að hún tók ekki þátt í gleði hans af eigin
hvöt og vilja. Var hann það barn, að halda að hann hefði unnið ástir
hennar? Voru karlmennirnir á Strombólí svo nægjusamir, að þeir
gerðu sig ánægða með sljóva og hlutlausa undirgefni, héldu þeir
að það væri ástin. Hún brosti hæðnislega. Hið sanna var, að þau
voru nú lengra hvort frá öðru en nokkru sinni fyrr. Og hún fann,
að hún myndi aldrei geta fyrirgefið Antoníó það, að hann skyldi nota
sér líkamlegan og andlegan vanmátt hennar um morguninn, þegar
presturinn hafði talið hana á það að snúa aftur til hans.
Allt í einu heyrðist henni að nafn sitt væri nefnt. Hún litaðist um,
en gat ekki séð neinn. En nú heyrði hún það aftur og greinilegar
en áður. Þegar hún reis á fætur sá hún konuandlit gægjast upp fyrir
klettabarð skammt frá henni, og magra hendi, sem gaf henni merki
um að koma.
Karen gekk þangað og sá að þetta var Lízetta.
— Ég er með kveðju til þín frá Lórenzó, sagði hún.
Karen gekk í hvarf fyrir barðið, því henni skyldist, að til þess
var ætlazt, að enginn sæi fund þeirra. Lízetta var líklega hrædd
um, að slúðurkerlingarnar myndu segja Antoníó frá því, að þær
Karen hefðu hitzt.
— Nú eru miklar líkur til þess, að Lórenzó lifi þetta af, sagði
Lízetta hátíðlega, er Karen hafði sezt við hlið hennar.
— Er hann aftur orðinn veikur? spurði Karen. Er það malarían?
Lízetta horfði undrandi á Karenu.
— Veiztu þá ekki hvað komið hefur fyrir? spurði hún. Veiztu
þá ekki að Antoníó réðist á Lórenzó og stakk hann með hnífi?
34 STJÖRNUR