Stjörnur - 01.04.1951, Side 41

Stjörnur - 01.04.1951, Side 41
undir einhverju yfirskyni. Og þegar ég kem aftur, getur tækið sagt mér, hvað gerzt hefur í htisinu, meðan ég var í burtu. Það nær svo að segja hverju smá- hljóði, sem orsakast í nánd við það, því platan, sem hljóðbylgjurnar lenda á í upphafi, er afar næm, auk þess, sem einnig er hljómmagnari í tækinu, sem margfaldar hvert hljóð, sem inn í það fer. Og meðan það er í gangi, getur ekk- ert hljóð farið framhjá því í húsinu, án þess að það komi fram á pappírsræm- unni. Þetta ætti þvx að verða mér ör- uggur leiðarvísir, gagnvart konu minni. — En ég held, að þú gerir ekki rétt með þessu. Ég held, að þetta sé aðeins hugar- burður hjá þér, — um að hún taki fram- hjá þér — eða hefur |>ú orðið var við það á nokkurn hátt? — Nei, ekki beinlínis, en ég vil að- cins losna við allan grun með þessu. Því þegar annarhvor aðili í hjónabandi er orðinn afbrýðissamur, þá er hjóna- bandið engin sæla, lagsmaður. Við slíkt % il ég ekki búa — alls ekki. — En ert þú þá sjálfur konu þinni svo trúr, sem skyldi? spurði Jónas og brosti dauft. Alfreð yppti öxlum og klóraði sér xandra ðalega í hnakkanum. — Ja, — ég veit nú ekki hvað á að segja um það, sagði hann með semingi. en bætti síðan við, ákveðið: — Nei, ég er henni ekki trúr eiginmaður. Ég skal segja þér, að ég var eitt sinn trúlofaður annari, — fyrir mörgum árum. Svo kynntist ég konu minni og giftist henni litlu síðar. Og ég elska hana mjög innilega, en þrátt fyrir það, hef ég aldrei slitið að fullu sambandinu við hina fyrri. Ég kem oft til hennar — og .... Hann yppti öxl- um kærulevsislega. Það átti að tákua fiam- haldið. Eg er nefnilega þannig gerður, að ég get ekki til lengdar vcrið við eina fjölina felldur. Og ef til vill hefur það verið heimska af mér að gifta mig, því . '. • aj ' ■ i 1 ■ . ég vil, sem sé, eina i dag og aðra á morgun, þú skilur. Hann hló lítið eitt, og sagði síðan hressilega: — Ef til vill hef ég sagt þér of mikið, Jónas, en þú hleypur ekki með þetta. Ég veit að ég má treysta þér. Þá er bezt að korna ta-kinu fyrir. Ég fer í dag og verð í burtu svo sem tvo daga. Tækið á að geta gengið svo lengi. Síðan tók hann tækið, stakk því í vas- ann og þeir sneru út úr dyrunum. Jónas hrökk svo við, að hann var nærri búinn að hrópa upp yfir sig, því ttm leið og hann snéri sér að dyrunum, sá hann — konu Alfreðs hraða sér frá þeim og fram í eldhúsið. Hún hafði þá staðið á hleri, ef til vill allan tímann, og heyrt allt, sem eiginmaður hennar sagði vini sín- um. Hann horfði óttablöndnum augum á Alfreð, en hann hafði ekki tekið eftir þessu. Og þótt undarlegt mætti virðast, sagði Jónas honurn ekkert frá þessu. Ef til vill kom það til af því, að hann var mjög á móti þessari ráðagerð Alfreðs, án þess honum kæmi það þó að nokkru leyti við. ★ ALFRE-Ð HOLGEORS ók hratt eftir veginum, gegnum borgina í litlu, svörtu Renaud bifreiðinni sinni. Hann hafði komið tækinu fyrir í svefnherbergi þeirra hjóna, og farið burt undir því yfirskyni, að hann væri í sérstökum viðskiptaer- indum, vegna einnar af uppfinningunt sínum. Hann var með úttroðna ferðatösku meðferðis, sem hann hafði lxeðið konxx sína að láta ofan í fyrir sig, án þess þó, að hann þyrfti hennar með. aðeins til þess, að gera ferðalagið líklegra. En hann fór ekki langt, — ekki einu sinni út úr borginni. Hann stöðvaði bíl- inn við lítið, hvítmálað hús og steig út. Hér átti fyrrveiandi unnusta hans heima. Hann barði að dyrum og hún kom út að stundarkorni liðnu. Það tirðu hinir mestu fagnaðarfundir, *## I

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.