Stjörnur - 01.04.1951, Síða 42

Stjörnur - 01.04.1951, Síða 42
þau spjölluðu saman og hlógu. Þau gengu inn í húsið og Alfreð tók töskuna með sér. Tveir dagar liðu, í ástarfuna og unaði samverunnar, og við endurminningar lið- inna ára. Htin vissi ekki, að hann var giftur, og hann hirti heldur ekkert um að segja henni það. Hvað kom það svo sem inálinu við? ★ ÞAÐ urgaði í bílvélinni og bifreiðin brunaði af stað. Eftir skamma stund var Alfreð kominn að sínu rétta heimili. Hann heilsaði konu sinni með kossi og laug upp smávegis klausu um viðskipta- árangur ferðarinnar. .F.ftir að þau höfðu heilsast og talað lítið eitt saman, fór kona hans frá og kom aftur litlu síðar — og hélt á litlum, flötum kassa í hendinni. — Hvað er þetta? spurði hún. — Ég fann þetta á náttborð- inu í svefnherberginu okkar. Það Iifnaði yfir Alfreð og hann sagði glaðlega: — Nú, þarna kemur tækið mitt, sem ég hélt mig vera búinn að tína. Ég hef sennilega lagt það á náttborðið og gleymt því þar. En nú skal ég sýna þér dálítið smellið, ástin mín. Hann sótti tækið, sem „framkallaði“ hljóðið og lét spóluna með pappírsræm- unni inn í það. Spólan var þá útgengin, yfir á aðra spólu — og alsett smáum, svörtum strikum. Alfreð var ekki laus við eftirvæntingu, og ef til vill tilhlökkun, er hann setti vélina í samband við rafmagnið. — Nú heyrðist hljóð, — hlátur og kvcnmanns- rödd sagði — Ertu kominn vinur? Síðan heyrðist smellur, eins og í kossi, fótatak og karlmannsrödd sagði: — Ég elska þig svo mikið, Elsa, má ég kyssa þig aftur? Alfreð hrópaði upp yfir sig: — Elsa, Elsa? — Hvernig stendur á þessu? Elsa er — er — — einmitt — —. Aftur heyrðist smella í kossi og síðan heyrðist hlátur aftur. Alfreð stökk til og kippti vélinni úr sambandi. Hann sneri sér að konu sinni, þrútinn af reiði: — Hvernig fórstu að þessu? blés hann út milli tannanna. — Þú hefur komið tækinu á mig í stað þess að það átti að vera á náttborðinu í svefnherberginu. — Hvernig vissirðu um tækið og notkun þess? Sagði Jónas þér það? Ha? Kona hans hló storkandi. — Já, auðvitað sagði hann mér það, en hann hefði ekki þurft þess. Ég heyrði allt, sem þú sagðir við hann í rannsókn- arst.'funni, svo Irl >.<-H*) í töhkui-a þian, þetta viðbjóðslega tæki þitt, sem varð aðeins til að afhjúpa sjálfan þig og hina viðurstyggilegu hræsni þína. Og þú hélst, að ég væri þér ótrú, ha, ha! Og ég neita því ekki, frekar en þú, eins og þú hefur nú kunngert mér, hvernig þú hefur farið á Jiak við mig. En ég læt þig líka vita það, Alfred Holgeirsson, að hér á heim- ilinu dvel ég ekki degi lengur. Hún fór að fara í kápuna sína, meðan hún sagði þetta. Hún tók svo litla hljóm- upptökutækið, þeytti því að manni sínum og hrópaði: — Hana, hafðu þetta hjá þér, þú þarft kannski að nota það einhverntíma við þessa drós, sem þú tekur svo langt fram- yfir mig. — Og ég get svo sem sagt þér það, að við Jónas Jónsson ætlum að gifta okkur í næstu viku. — Vertu sæll. Hurðin féll að stöfum með háum smelli, en Alfreð Holgeirsson hneig niður I stól, algerlega ruglaður og máttvana. 42 *##

x

Stjörnur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.