Stjörnur - 01.04.1951, Síða 44
KoMir brlar.
Smásaga eftir Guy de Maupasant.
NÝLEGA stóð svohljóðandi í
blöðunum: „Frá Boulogna-Sur-
Mer, er blaðinu skrifað 22. jan.:
— Sorglegt slys hefur bætzt við
öll þau mörgu sem sjómanna-
stéttin hér hefur orðið fyrir síð-
ustu tvö árin. Fiskibátur, sem
Javel formaður stýrði, lenti í
brimgarðinum, þegar hann var að
koma að og brotnaði í spón við
hafnargarðinn. Þrátt fyrir allar
tilraunir björgunarbátsins og
margítrekaðar tilraunir til þess að
skjóta línu til skipverja, drukkn-
aði öll áhöfnin, fjórir skipverjar
og drengur. — Óveðrinu hefur
ekki slotað enn. Menn óttast að
slysin verði fleiri.“
Hver var þessi Javel formaður?
Er það bróðir Javels einhenta?
Það rifjaðist upp fyrir mér
saga, sem ég hei heyrt. Það munu
vera um átján ár síðan.
Þá var Javel eldri formaður á
dragnótabát. Báturinn sá var mjög
fengsæll. Hann var sterkur og
þoldi vel flest veður, breiðbyggð-
ur og kastaðist á öldunum eins og
korktappi, plægði hafið með full-
um seglum fyltum söltum stormi
og hafði í eftirdragi stóra drag-
nót, sem skóf hafsbottninn og
krækti í allt það fiskakyns, sem
mókti milli steinanna: flatfisk sem
var hálfgrafinn í sandinn, stóra
krabba með bognar klær og hum-
ar með oddhvössum öngum.
Þegar stinnings kaldi er og ald-
an kröpp fer báturinn á veiðar.
Nótin er fest á langa jámbenta
tréstöng og lag't út á köðlum, sem
renna á tveimur keflum á borð-
stokknum. Og bátinn rekur fyrir
vindi og straumi með þetta veiði-
tæki í eftirdragi, sem rænir og
ruplar á hafsbotninum.
Javel hafði vngri bróður sinn
með á bátnum, auk fjögurra há-
seta og drengs. Hann hafði farið
frá Boulogne í bezta veðri til þess
að toga. En þrátt hvessti svo að
um munaði og svo kom sveipur
og báturinn missti seglanna og
fór að reka. Hann rak upp að Eng-
landsströnd; en þar hamaðist löð-
urhvítt brimið við klettana, ólg-
aði og sauð svo að ekki var viðlit
að ná lendingu. Fleytan lagði frá
44 *#*