Stjörnur - 01.04.1951, Side 46

Stjörnur - 01.04.1951, Side 46
út eins langt og hún náði. Síðan var farið að herða á festinni aftur og lina á vaðnum, sem nótin var í. Það tókst að lokum; og nú náð- ist handleggurinn aftur. Hann dinglaði þarna steindauður í blóðugri treyjuerminni. Javel yngri virtist gjörsamlega frávita. Hann vr.r færður úr treyj- unni og þá blasti við ægileg sýn. Handleggurinn var eins og kássa og blóðið fossaði úr sárinu. Þá leit Javel á handlegginn og sagði: —- Hvert í heitasta! En blóðið streymdi í sífellu nið- ur á þilfarið og einn skipverja hrópaði: — Honum blæðir út. Við verð- um að stöðva blóðrásina! Þá tóku þeir gildan, svartan tjöruhampsspotta og bundu um stúfinn og hertu á eins og þeir gátu. Blóðrásin stöðvaðist smátt og smátt og hætti loks alveg. Javel yngri stóð upp, handlegg- urinn dinglaði. Hann tók hann með hinni hendinni, lyfti honum. Allt var brotið, leggirnir komnir í mél, vöðvarnir einir héldu hand- leggnum föstum við líkamann. Hann horfði raunalega og hugs- andi á handlegginn og svo settist hann á samanbrotið segl á þilfar- inu. Félagarnir réðu honum til að væta sárið í sífellu svo að ekki hlypi drep í það. Þeir settu vatnsstamp hjá hon- um og réttu honum glas. Hann fyllti það hvað eftir annað og jós í sífellu í sárið. — Þér skánar þegar þú kemur undir þilfar, sagði bróðir hans. Svo fór Javel yngri niður, en kom brátt upp aftur. Honum var ógeðfelt að vera einn. Hann sett- ist aftur á seglið og fór að væta handlegginn. - Þeir höfðu veitt vel. Stórir fiskar með hvítan maga lágu á þilfarinu kringum hann og engd- ust sundur og saman í dauðateygj- unum; hann starði á þá, án þess að hætta að væta sárið. Þegar þeir voru komnir inn undir Boulogne hvessti á ný, bát- urinn hentist áfram og skoppaði og hristi veslings sjúklinginn. Nóttin féll á. Stormurinn ó- látaðist þangað til í dögun. Um sólarupprás sá til lands í Eng- landi. En nú var farið að kyrra í sjóinn og siglt beint inn til Frakk- lanas aftur. Undir kvöld kallar Javel á fé- laga sína og sýnir þeim nokkra svarta díla á handleggnum. Ljót sjón. Sárið var farið að rotna á dinglandi handleggnum, hand- leggnum, sem ekki var hans leng- ur. Skipverjarnir horfðu á og sögðu sem þeim sýndist: — Það gat verið kolbrandur? — Væri ekki bezt að lauga sár- 46 ***

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.