Stjörnur - 01.04.1951, Side 49

Stjörnur - 01.04.1951, Side 49
$tú(kft með lestinni. Smásaga eftir COURT HELMER. ÞEGAR lestin lagði af stað frá Horsens, tók ég fyrst eftir henni. Hún sat í klefa við hliðina á öldr- uðum feitum karli, sem ég hélt í fyrstu að væri faðir hennar. Síðan skildist mér að svo væri ekki Hún var mjög fögur. Ég stað- næmdist þessvegna í ganginum fyrir framan klefadyrnar, þar sem ég gat virt hana fyrir mér inn um gættina. Tvisvar eða þrisvar horfði hún í áttina til mín, en án nokkurs áhuga. Það þótti mér satt að segja undarlegt, því ég var í nýjum liðsforingjabúningi og átti því ekki að venjast, að ungar stúlkur létu sem þær sæju mig ekki. — Ég er, þótt ég segi sjálf- ur frá, ekki ósnotrari piltur en gerist og gengur, og liðsforingja- búningurinn fór mér prýðilega. Ég hafði nýlega öðlast rétt til að bera hann, og þetta var í fyrsta sinn, sem ég fékk leyfi eftir að ég fékk hann. Það var því ekki að undra, þótt ég liti í þá spegla, sem á vegi mínum urðu. Nei, þessi stúlka var eitthvað öðruvísi en allar aðrar, — og hún missti ekki aðdráttarafl sitt við það. Mér var ekki í hug að gefast upp í fyrstu atrennu. Ég leit aftur inn um gættina og brosti til stúlk- unnar, þegar augu okkar mætt- ust. En hún flýtti sér að líta út um gluggan. Ég hló með sjálfum mér. Þetta þótti mér gaman. Þetta var svei mér skemmtileg stúlka. Við fórum framhjá Vejle og þá er ekki langt til Fredericia og þar þurfti ég að skipta um lest. — Það væri gaman að vita hvert hún væri að fara. Ég horfði enn í áttina til hennar, ungur nýbak- aður liðsforingi þarf ekki að vera feiminn. Ég virti fyrir mér með sívaxandi hrifningu vangasvip hennar og dökka sjálfliðaða lokk- ana. Mér fannst hún alltaf verða fallegri og fallegri, því lengur sem ég horfði á hana. Feiti karlinn, sem sat við hlið- ina á henni, hallaði sér upp að þilinU og svaf, dró andann með rykkjum og hálfhraut. Ég fylltist viðbjóði. Að hugsa sér, að geta hrotið við hliðina á þessari dá- ##* 49

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.