Stjörnur - 01.04.1951, Page 50

Stjörnur - 01.04.1951, Page 50
samlegu stúlku — og það um há- dag í glaðasólskini. Hann hefði sannarlega átt það skilið, að vera látinn rýma sætið fyrir ungum pilti, sem betur hefði kunnað að nota tækifærið. Nú leit hún í áttina til mín. Ég kipraði saman annað augað og brosti. En hún svaraði ekki í sömu mynnt. Hún horfði á mig skiln- ingssljó og hissa. Nú staðnæmdist lestin og hún reis á fætur. En klefinn var þröngur og hún greip báðum höndum tvær heljarmiklar ferða- töskur, sem voru á vegi hennar. Ég flýtti mér að skjótast í gættina. Ég lyfti hönd að húfunni kurt- eislega. — Ég skal taka töskurnar, ung- frú. Nú loks auðnaðist mér að sjá hana brosa. Og hvílíkt bros, allt andlitið Ijómaði, hvítar tennur, yndislegar rauðar varir. Hún brosti til mín. Hvílíkur sigur. — Farið þér af hér, spurði ég. Hún gekk fram í ganginn og kinkaði kolli. Svo hélt hún áfram, eins og leið lá eftir ganginum og sté af lestinni. Ég fylgdi henni eftir eins fljótt og ég gat. Tösk- urnar voru þungar. Það var eins og þær væru fullar af grjóti. Hún hélt áfram og leit ekki við. Það var drjúgur spölur upp í mót- tökusalinn. Hún var alltaf á und- an mér. — Lísa! hrópaði ungur maður og kom á móti henni með út- breiddan faðminn. — Eiríkur, stundi hún og varp- aði sér um hálsinn á honum. Osjálfrátt lét ég báðar töskurn- ar falla til jarðar með þungum skelli. Nei, þetta var þó sannar- lega of langt gengið. Hvernig gat stúlkan leyft sér að leika ungan, laglegan, liðsforingja svona grátt. Ég ræskti mig og hnippti í hand- legginn á ungu stúlkunni. — Afsakið ungfrú. Mín lest fer eftir tvær mínútur. Hér eru tösk- urnar yðar. Hún leit við undrandi. — Töskurnar mínar? Ég á ekki þessar töskur, heldur feiti mað- urinn, sem sat við hliðina á mér. — Já, en en, stundi ég. Þér tók- uð þær þó fram um leið og þér fóruð. — Ég ætlaði bara að hreyfa þær ögn úr gangveginum, svo ég kæmist út, svaraði unga stúlk- an og brosti á ný sínu yndislega brosi, sem að þessu sinni var til- einkað öðrum en mér. Svo stakk hún hönd sinni undir arm Eiríks og þau gengu ham- ingjusöm sína leið. Ég greip á ný hinar blýþungu ferðatöskur feita mannsins og hraðaði mér sem mest ég mátti — og náði lestinni. 50 ***

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.