Stjörnur - 01.04.1951, Qupperneq 51
GUÐRÚN ÓFRÁTEKIN
Framh. af siSu 2.
ANNAÐ SVAR var að koma í þessu:
„Ég var að lesa bréfið frá Guðrúnu í
3. Stjörnuhefti þessa árs. Hún veit ekki
hvað hún vill. Tæplega fertugur maður,
sem hún iýsir svo fallega, að maður
hlýtur að fá samúð með og hrífast af,
þótt maður hafi aklrei heyrt hann eða
séð, elskar hana. Hann er hófsamur og
nærgætinn við hana, býður henni allt
það bezta, sem hann á völ á að veita,
en gerir engar kröfur. — Þessi maður á
áreiðanlega annað skilið en að honum
sé sýnt fálæti. Mikið vildi ég að hann
fengi fyrr eða síðar góða konu og mikla
hamingju. Ég er ekki x neinum vafa um
að hann yrði góður eiginmaður. En hann
þarf að eignast konu, sem skilur hann
og metur, sem elskar hann og virðir.
Ég ætla ekki að gefa þér nein ráð,
Guðrún. En trúað gæti ég því, að enda
þótt þú segðir skilið við þennan mann
og ungir piltar sæu að þú ert ekki frá-
tekin, þurfir þú lengi að leita manns,
sem betur væri við þitt hæfi. — Ég hef
þá trú, að þessi „roskni maður", hafi það
góðan smekk. að þú sért einmitt rétta
konan handa honum, en ekki handa ein-
hverjum strák 25 ára gömlum. — Móðir,
sem hefur skrifað áður
★
Að halda sitt strik
eða ....
SVO ER ÞAÐ Karl Karlsson iðnnemi
— og verzlunarstúlkan hans, sem vill sem
fyrst verða frú og láta hann setjast í
búðarholuna, þar sem henni leiðist. Karl
vill fá að Ijúka sínu námi, í stað þess að
verða verzlunarstjóri og háður tengda-
fólki sínu.
OIl sanngirni mælir með því, Karl, að
þú fáir að halda þitt strik. Hér er miklu
meira í húfi fyrir þig en unnustu þína.
Þú átt hér að yfirgefa lífsstarf, sem þér
Hér er ein góð og sameiginleg
óskamynd af Bing Crosby og Fred
Astorie.
er hugleikið, til þess að geðjast hennar
fólki og fiælsa hana úr leiðinlegri at-
vinnu, sem hún annars yrði að vinna í
tvö ár enn, í stað þess að komast strax
í hjónabandið. Hún hlýtur að átta sig
á því, að það er auðveldara fyrir hana að
bíða í þessi tvö ár, en fyrir þig að takast
á hendur ævistarf, sem þér er ekki geð-
fellt. Og enda þótt þessi verzlun standi nú
sæmilega föstum fótiim, er hún ekki vkk-
ar eign, og áður en varir yrðir þú kann-
ski sjálfur að brjóta þér nýja braut —
þá væri betra að gera það á þeim vett-
vangi, þar sem hæfileikar þínir og áhugi
hafa haslað þér völl. Það er áreiðanlega
bezt fyrir ykkur bæði að hún sýni skiln-
ing og fórnfýsi og láti þig halda þitt
strik. Ræddu þessi mál í fullri hrein-
skilni við hennar fólk og það hlýtur að
verða á þínu bandi. — Stirnir.
### 51