Stjörnur - 01.04.1951, Side 54

Stjörnur - 01.04.1951, Side 54
— Því mið'ur er kaffið alltsaman bðið. Ég ætla að fara inn til fjölskyldunnar, sem býr hérna við hliðina og fá dálítið að láni. Og það gerði hún. I.itlu seinna kom htin inn með kaffið. En á nieðan hún var að renna í bolla unga mannsins var hringt. Hún fór fram og opnaði og ungi mað- urinn heyrði hana vera að tala við tvo karlmenn frammi á ganginum. Þeir koma síðan beina ieið inn í stofuna, þar sem ungi maðurinn sat. — Viljið bér gera svo vel og koma fram með skjöl yðar um það hver þér eruð, við koniiim frá lögreglunni. Nú uuinu margir spýrja, hvernig gat konan þekkt þorparann, eftir þeirri lýs- ingu, sem af lionum var gefin? Hann hafði rakað skegg sitt, litað hár sitt og keypt sér gleraugu. Hún segir að það hafi verið mjög auð- velt. Ég hafði enga ástæðu til að gruna þennan unga og alniennilega rnann. Hann sýndi jafnan hina mestu kurteisi í húsi mínu. En þegar ég sá, hve honura r arð um, og minntist þess, að hafa séð hné- buxur alveg eins og þær, sem hann átti að hafa verið í, í klæðaskápnum hans, þá skyldi ég strax, að það var hann, sem verið var að auglýsa eftir. og lét því eins og ég þyrfti að ná mér í kaffi. Eg fékk nágranna minn til þess að síma í lögregluna. Og það bezta var, að maður- inn hélt að hann væri alveg öruggur, þótt ég væri alveg viss um, að bað var hann. ★ Indversk endurhold^nn. í SMÁBÆNUM Shalinger í Indlandi hefir bramínastúlku einni tekizt að fá alla bæjarbúa til að trúa því, að hún hafi lifað mörgum sinnum áður en núverandi jarðvera hennar hófst. Stúlka þessi, sem nú. vekur rnikla at- hygli er dóttir alþekkts og háttvirts bramaprests, og ekki var hún nema þriggja ára þegar hún byrjaði að segja föður sínum frá fyrri tilveru sinui í borginni Maglebad. Sagðist hún hafa átt þrjá syni og hét sá elzti Sitaram en sá næsti Ramsvaropp. í fyrstu tóku foreldrar stúlkunnar ekkert mark á þessu og töldu það hugaróra, en eftir því sem hún varð eldri urðu frásagnir hennar skýrari og hún kvaðst muna um fyrri tilveru sína. Foreldrarnir neituðu cnn að trúa henni og varð hún |)á reið og tók að fasta. Kvaðst hún þá mundu geta komist í samband við syni sína. Þá loksins fóru foreldrar liennar að gefa þessti gaum og fóru nú með henni til Maglebad, þar sem hún sagðist hafa verið áður. Þegar þangað kom benti stúlkan á húsið, sem hún sagðist hafa átt heima í. En ekki var allt þar með búið. Þegar luin kom inn í húsið gekk hún til gamals manns sem þar var inni og inalti: Þessi maður er sonur minn. Hún þekkti lika hina tvo syni sína og vissi nöfn á mörgu fólki í bænum, sem hún sagðist kannast við frá fyrri æfi sinni. Hefu’r þetta vakið afarmikla athygli í Indlandi. Það þykir fullsannað, að stúlkan liafi aldrei á núverandi ævi sinni komið í þennan bæ fyr en í þetta sinn, og gat þó lýst húsum og fólki jrar áð- ur en hún kom þangað. Hún vill ekki yfirgefa húsið sitt í Maglebad og seg- ist hvergi eiga heima neina |iar. Og ,,syni sína“ umgengst hún eins og móðir, þó þeir séu orðnir garnlir og gráskeggjaðir en hún kornung stúlka. ★ J.itið til baka. Ungur ég um firnafjöll fætur þreytti lúna. Enn mér bendir cilíf mjöll upp til hæstu brúna. Loki. 54 STJÖRNUR

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.