Goðasteinn - 01.09.2010, Page 150
148
Goðasteinn 2010
kirkju og fundaherbergi sem einnig nýtist sem kennslustofa. Kvenfélag kirkj-
unnar styður starf hennar með ýmsu móti og er mikilvægur bakhjarl fjáraflana
til góðra verkefna, um leið og það er uppbyggilegur kirkjulegur vettvangur
kvenna í sókninni.
Snemma reyndi á eitt af þeim skylduverkefnum Oddaprests að taka á móti
gestum sem komu á staðinn. Einkum eru það stórir hópar sem óska eftir slíkri
leiðsögn og fræðslu, og komu ófáir rútufarmar í hlað frá vori til hausts í þeim
erindum. Það jók mjög við þekkingu mína á stað og umhverfi þegar hringsjáin
á Gammabrekku var sett þar upp að tilhlutan Oddafélagsins vorið 1994, og
var kærkomin viðbót við skoðunarvirði staðarins. Sama máli gegndi um styttu
Ásmundar Sveinssonar, „Sæmundur á selnum”, sem sett var upp 1998 í tilefni
af aðlíðandi kristnihátíð í Rangárþingi. Hvort tveggja prýðir staðinn, eykur að-
dráttarafl hans og fyllir í hið sjónræna tómarúm sem skortur á sýnilegum forn-
minjum veldur óneitanlega. Oddafélagið hefur mikilvægu hlutverki að gegna
og hefur sannað með góðum hugmyndum frjórra og framsýnna manna sem
sumar hafa komist í framkvæmd, hve miklu samtakamátturinn fær áorkað, og
hversu Oddastaður á margvíslega möguleika til að eflast og dafna, svo hann fái
staðið ennþá traustari fótum í menningu lands og þjóðar.
Staðarpresturinn finnur fljótt fyrir því að á hans eigin herðum hvíla marg-
víslegar skyldur við kirkju og stað, sem ekki verður öllum varpað yfir á aðra.
Oddaprestur er heimamaður á staðnum, og hefur því yfirsýn dag frá degi yfir
ástand staðarins, hvað skortir og hvað nægir. Fólk sem á staðinn kom var gjarn-
an óspart bæði á lof og last, hældi prestinum fyrir fallegar vegghleðslur eða
umhirðu kirkjunnar, og fann að við hann ef kirkjugarðurinn var ósleginn eða
legsteinn tekinn að hallast. Oftast var góð samvinna um að hafa þessa hluti í
lagi milli mín og sóknarnefndar, en ábyrgð beggja er umtalsverð á að halda
ásýnd svo fjölsótts sögustaðar og umhverfi hans í fallegu horfi, en það skiptir
miklu máli fyrir sjálfsmynd byggðarlagsins í heild.
Ýmis nauðsynja- og framfaramál sveitarinnar snerta vitaskuld hvern ábú-
anda, og staðarpresturinn lætur vitanlega ekki sitt eftir liggja í mikilvægum
málum. Í þeim efnum ætla ég sjálfum mér þó engan heiður, en með samstilltu
átaki góðra áhrifamanna var ráðist í að hækka Oddaveg upp og leggja hann
bundnu slitlagi á árunum 1994 og 1995. Þetta var að vonum til mikilla bóta,
en áður hljóp vegurinn í svað í vorleysingum ár hvert, og varð oft ófær að
vetrinum. Um leið og þetta verk var unnið beitti sóknarnefndin sér fyrir því,
undir forystu öðlingsmannsins Jóns Óskarssonar á Hellu, að gert var rúmgott
bílastæði við kirkjuna. Þá get ég ekki skilist við frásögn þessa án þess að minn-
ast á neysluvatnið í Odda. Það var tekið úr ævagömlum brunni, á að giska 10 m