Goðasteinn - 01.09.2010, Page 204
202
Goðasteinn 2010
Árið 1950 var nýja húsið að Vallarbraut 10 tilbúið. Næsta skref var að stofna
til hjónabands sem þau hrundu í framkvæmd 30. júlí sama ár. Þá hafði þeim
þegar fæðst frumburðurinn sem fékk nafnið svavar. Hann er f. 4. júlí 1947,
kvæntur Hólmfríði Pálsdóttur og eiga þau tvö börn. Næstur er Georg f. 29.
sept. 1951, var kvæntur Guðbjörgu Runólfsdóttur og eignuðust þau fjögur börn.
sólveig f. 24. ágúst 1953, gift Jóni Smára Lárussyni og eiga þau þrjú börn.
Næstyngstur er Óli Kristinn f. 30. maí 1960, kvæntur Auði Sigurðardóttur og
eiga þau fjögur börn. Yngstur er Sigurður Grétar f. 17. mars 1962, kvæntur
Katrínu Birnu Viðarsdóttur og eiga þau fjóra syni.
Ottó og Fjóla bjuggu sér og börnum sínum einstaklega hlýlegt og fallegt
heimili að Vallabraut hvar málverk hans og myndir prýða veggi og fagur og
litskrúðugur garður kórónar umgjörð heimilisins. Þangað þótti mörgum gott að
koma enda gestkvæmt oft á tíðum.
Ottó hlaut ekki langa skólavist á uppvaxtarárum sínum, aðeins skyldunámið
og dugði það honum vel í lífinu ásamt góðri skynsemi og mörgum stórbrotnum
hæfileikum. Honum fannst samt alla tíð hann hafa misst af miklu að hafa ekki
farið í lengra nám. Hann átti þó síðar eftir að bæta úr því svo eftir var tekið.
Árið 1946 réðst hann til starfa sem bílstjóri hjá Kaupfélagi Rangæinga hvar
hann starfaði i 50 ár samfellt, fyrst við akstur milli Reykjavíkur og Hvolsvallar,
en seinni árin á fóðurbíl. Ottó eignaðist um dagana marga og góða bíla af ýms-
um gerðum og stærðum.
Ottó átti sér mörg hugðarefni sem hann gældi ekki aðeins við í hugskoti sínu
heldur hratt í framkvæmd og drakk í sig alla þá þekkingu þeim tengdum sem
hann gat hendur á komið. Þannig kunni hann skil á flóknustu leyndardómum
ljósmyndunar og viðeigandi tækjum og tólum. Hann var margsinnins fenginn
til að annast flóknar og vandasamar myndatökur fyrir utan það sem hann mynd-
aði sér til ánægju og yndisauka og til að mála eftir. Hann bjó að næmu auga og
innsæi listamannsins og notaði það óspart við listsköpun sína, hvort heldur það
nú var að taka ljósmyndir, mála eða þenja nikkuna sína; allt þetta gerði hann vel
og hlaut að launum verðskuldaða viðurkenningu samferðarfólks.
Hann hafði myndavél ávallt meðferðis á ferðum sínum um sveitirnar sem
bílstjóri, einnig á tíðum ferðalögum innanlands um hálendi og láglendi. Ottó
var ljósmyndari Morgunblaðsins á Suðurlandi um árabil. Mikið safn ljósmynda
liggur eftir hann sem geymir þúsundir mynda af mannlífi í Rangárvallasýslu
frá fimmta áratug síðustu aldar fram til allra síðustu vikna og hafa myndir hans
prýtt ýmsar bækur, tímarit og dagblöð. Á árunum 1974-75 tók hann myndir af