Bændablaðið - 10.10.2024, Síða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 Af vettvangi ændasamtakanna
...Gæði þegar að er gáð
Skemmuvegur 46, Kópavogur
Rafstilling S: 581-4991 Netfang: Rafstilling@rafstilling.is
Reki S: 562-2950 Netfang: Reki@reki.is
Afleiðingar óveðurs fyrri hluta
júnímánaðar og einnig óhemju
rigninga í lok júní eru stöðugt að
koma betur í ljós.
Mest eru áhrif
þessa veðurfars
á Norður- og
Austurlandi, en
önnur landsvæði
urðu einnig fyrir
búsifjum. Við
bætist síðan
að tíðarfar á
landinu, sem
eftir fylgdi, getur
tæpast talist hagfellt og sést það m.a.
á því að uppskerustörf hafa dregist
langt fram á haustið.
Í júní var ljóst að umfangið
væri þess eðlis að það myndi hafa
veruleg áhrif á afkomu bænda með
margvíslegum hætti. Heybirgðir
voru mjög víða í sögulegu lágmarki
á sama tíma og verulegt kal blasti
við. Í vor var óvanalega mikið frost
í jörðu og jarðvegur var því kaldur
fram eftir sumri sem tafði verulega
jarðvinnslu. Sú endurræktun sem
margir snéru sér að þegar loksins
var fært um tún gaf ekki þá
uppskeru sem til var ætlast og þar
sem fé var lengi á túnum hafði það
einnig veruleg áhrif á uppskeru.
Síðslegin túnin gefa síðan ekki
mikla haustbeit sem hefur bein áhrif
á vænleika lamba.
Opnað hefur verið skráningarkerfi
á Bændatorginu (torg.bondi.is) þar
sem bændur eiga að skrá það tjón
sem varð af völdum óveðursins í júní
eða rekja má til þess. Valmöguleikar
til skráninga eru ekki tæmandi en
gefa þó mynd af því hvernig megi
standa að skráningum.
Hægt er að setja inn viðhengi
með nánari skýringum og myndum
ef við á og bæta við gögnum eftir á.
Bændur eru hvattir til að greina sem
skilmerkilegast frá þeim aðstæðum
sem þeir hafa þurft að takast á við
í kjölfar þessa óveðurs. Einnig er
mikilvægt að gera vel grein fyrir
afdrifum sauðfjár, nautgripa,
hrossa í skýrsluhaldskerfum –
þær upplýsingar verða notaðar
við úrvinnslu umsókna. Gott er
að skrá strax það tjón sem vitað
er um. Þegar frekari upplýsingar
liggja fyrir t.d. varðandi afurðir
og vanhöld á fullorðnum gripum
er þeim upplýsingum bætt við
umsóknina. Í einhverjum tilfellum
eru holdakálfar sem fæddust í júní
léttari en vanalega, en hvernig
þeir leggja sig kemur jú ekki í ljós
fyrr en að ári. Þar sem tjón hefur
orðið í útiræktun grænmetis þá eru
garðyrkjubændur hvattir til að skila
inn gögnum. Sama á við um t.d. þar
sem hvassviðrið í júní olli tjóni á
ræktarlöndum.
Ekki liggur fyrir hversu miklu
fjármagni, frá hinu opinbera,
verður varið til að mæta þessum
tjónum. Unnið er að að því að ná
utan um heildarumfang tjóna og er
mikilvægt að bændur skrái allt það
tjón sem fyrst. Hægt er að bæta við
skráningar í tjónaskýrslur fram að
skiladegi.
Skráningarformið á Bænda-
torginu verður opið til og með 1.
nóvember næstkomandi. Hægt
er að leita aðstoðar hjá RML við
skráningar.
Höfundur er verkefnastjóri
hjá Bændasamtökunum.
Afleiðingar
ótíðar í júní
– Mikilvægt að bændur tilkynni tjón fyrir 1. nóvember
Unnsteinn Snorri
Snorrason.