Bændablaðið - 10.10.2024, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 10.10.2024, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 Vígalegir nemendur, eða þeir Jakob Kristinsson (t.v.) og Mikael Máni Oddsson, en allir nemendur voru gallaðir upp í síðustu heimsókninni, sem var í Ártanga, til að koma í veg fyrir að eitthvað krossbærist á milli stöðvanna. Nemendur fengu líka skóhlífar. Vísnahornið Í tilefni þess að ritari varð 70 ára um daginn, barst frá Pétri lækni á Akureyri þessi vísa. Gakktu í elli gæfustig, gerjist hjá þér eðallandinn og aldrei geðdeyfð angri þig, eða getuleysisfjandinn. Reynir Hjartarson sendi þessa: Sjötugum sendist þér kveðja seggurinn orðs og ljóða. Megi þig gæðingar gleðja og góðvinir ölföng bjóða. Gylfi Þorkelsson sendi einnig kveðju. Ennþá er dágóður dugurinn og drengslega vakandi hugurinn Yrkir og temur. Óvænt svo kemur áttundi áratugurinn. Til ritara barst lítill bæklingur frá því 1930, en sá ber titilinn Stuðlar. Höfundur er Kári S. Sólmundarson. Hér er þjóð á Fróni fróð, fædd af góðu kyni. Mín því bjóða mun ég ljóð mörgum óðar vini. Mælt við Símon Dalaskáld: Símon fljóðum hýrum hjá hróðrar fróðleik styður, talinn slóðum ísa á afbragðs ljóðasmiður. Pálmi Frímannsson frá Garðshorni á Þelamörk var læknir, en lést um aldur fram. Hann orti þessa ágætu landbúnaðarvísu sem allir skilja: Margur hefur Fróða hveitis farið hryggur án, sem fátækur af gulli til mín leitar, en ormabeðjufurum er mér ljúft að veita lán úr lífsins banka, tjóðurhæli geitar. Pálmi lék með kunnar hendingar til gamans og prjónaði við. Frakkir þingmenn fóru á stjá, fyrir nokkrum dögum. „Sá er jafnan endir á, Íslendingasögum.“ En þótt mig vanti völdu og auð vera ætti í lagi „að sækja bæði sykur og brauð, sitt af hvoru tagi.“ Vinur minn Eiríkur Jónsson lét fljóta til Vísnahorns nokkrar frá hagyrðingakvöldi í Skagafirði. Spurt var um eiginleika sem góðir hestamenn væru gæddir. Pálmi Runólfs í Hjarðarhaga svaraði: Hann skal kunna á taumi taka, týna aldrei vegi, geta stigið beint á bak, bæði á nóttu og degi. Sigurður Hansen sagði: Enga lesti iðka kann, er í flestu glaður. Sæmir best ef söngvum ann sannur hestamaður. Sr. Hjálmar Jónsson svaraði. Fyrir herðar, háls og bóg, höfuð, bak og lendar, varla eru níu nóg, náist saman endar. Umsjón: Magnús Halldórsson mhalldorsson0610@gmail.com Matreiðslunemar heimsóttu garðyrkjubændur Sölufélag garðyrkjumanna bauð matreiðslu- nemendum í Menntaskólanum í Kópavogi í heimsókn til garðyrkjubænda á Suðurlandi á dögunum. „Tilgangur ferðarinnar var að kokkanemar fengju að kynnast ræktuninni frá fyrstu hendi, það er að segja að fá fróðleik og kynningu frá okkar garðyrkjubændum, sem eru virkilega ánægðir að fá nemendur í heimsókn. Það var svo gaman að finna hvað nemendurnir voru áhugasamir um það sem fyrir augu þeirra bar. Þar sem þau eru í kokkanámi hafa þau mikinn áhuga á mat og allt sem tengist honum. Vilja smakka á öllu og læra meira,“ segir Kristín Linda Sveinsdóttir, markaðsstjóri hjá sölufélaginu. Hópurinn heimsótti sjö garðyrkjustöðvar en farið var í Garðyrkjustöðina Kinn í Hveragerði, Garðyrkjustöðina Heiðmörk í Laugarási, Flúðasveppi og einnig í útigarða Jörfa við Hvítárholt, Friðheima í Reykholti og svo var endað á Garðyrkjustöðinni Ártanga í Grímsnesi. Kristín Linda segir að það hafi verið mikil ánægja með ferðina. „Það kom þeim á óvart hversu umfangsmikil íslensk grænmetisræktun er og hversu flókið það getur verið að rækta grænmeti til að geta fengið góða og mikla uppskeru. Það er okkur mikil ánægja að eiga svona gott samstarf við skólann og geta átt kost á að fræða og kynna okkar starfsemi fyrir nemendur.“ /mhh Vilberg Darri Gunnarsson (t.v.) og Tómas Andri Jörgensson voru ánægðir með nýuppteknu gulræturnar. Nemendur Menntaskólans í Kópavogi saman komnir í grænmetisgarði með ferskt og fallegt grænmeti, alsælir með heimsóknir sínar til garðyrkjubænda. Myndir / Aðsendar Nemendur fengu að taka upp grænmeti í útigarðinum í Hvítárholti hjá Jörfa í Hrunamannahreppi. Hlynur Sigurbergsson hjá Garðyrkjustöðinni Kinn í Hveragerði er hér að fræða nemendur um starfsemi stöðvarinnar. Margrét Lilja Jónsdóttir og Kristján Ragnar Waagfjörð Stefánsson með fullt fangið af nýjum íslenskum gulrótum. Nemendur fengu að taka með sér fullan kassa af útiræktuðu grænmeti frá Jörfa til að prófa að matreiða með. Flúðasveppir eru vinsælt fyrirtæki, sem alltaf er gaman að heimsækja og fræðast um starfsemina og það klikkaði ekki í heimsókn nemendanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.