Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 32

Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 32
32 Viðtal Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 Rebekka K. Björgvinsdóttir nautgripabóndi hlaut í sumar fyrsta lán Byggðastofnunar sem ætlað er til nýliðunar í landbúnaði undir nýju samkomulagi við evrópska fjárfestingasjóðinn (EIF) þegar hún festi kaup á Hólmahjáleigu í Austur- Landeyjum. Rebekka varði fyrstu árum ævi sinnar á Syðstu-Mörk í Rangárþingi eystra, þar sem afi hennar, oddvitinn Guðjón Ólafsson, og amma, Hallfríður Helga Dagbjartsdóttir, voru með búskap. Fjögurra ára fluttust þau foreldrar hennar til Reykjavíkur en Rebekka sótti fast í að verja öllum sumrum og fríum í sveitinni hjá afa og ömmu. „Ég segist alltaf vera úr sveit, ef einhver spyr, enda kann ég hvergi betur við mig,“ segir Rebekka sem hefur nú fest rætur sínar kirfilega í Austur-Landeyjum. „Ég átti tvær íbúðir á Hellu sem ég leigði út, en eftir að við ákváðum að reyna okkur við kaupin á Hólmahjáleigu seldi ég þær og þannig náðum við upp í tíu prósentin sem til þurfti við kaupin – og reyndar meira en það. Svo gat ég fært gamalt íbúðarlán yfir á Hólmahjáleigu, með lægri vöxtum og öllu sem því fylgir. En alls er þetta 90% veðhlutfall hjá okkur. Heil tíu prósent hljóma kannski ekki sem há upphæð, en fyrir þá sem láta sig dreyma um að kaupa jörð þá verður að athuga að heildarkaupverðið getur hlaupið á hundruðum milljóna,“ segir hún hlæjandi. Kaupverð Hólmahjáleigu var 280 milljónir króna, en í kaupunum fylgdi aðliggjandi jörð, Rimakot og svo bústofn, vélar og framleiðsluréttur. Jörðin er í kringum 600 hektarar, um það bil helmingurinn gróið og grasgefið land og hinn helmingurinn sandur, en báðar jarðir liggja að sjó. Fyrrverandi eigendur voru þau Rafn Bergsson, formaður búgreinadeildar nautgripabænda, og kona hans, Majken Egumfeldt-Jörgensen, sem hafa fært sig um set í Austur-Landeyjum og búa nú á Stóru-Hildisey 1. Þau hjónin tóku við Hólmahjáleigu fyrir tæpum 20 árum en bærinn var áður í eigu foreldra Rafns. Fundu hvort annað á Tinder Rebekku við hlið í þessum stórræðum er kærasti hennar, Jack William Bradley, sem ættaður er frá Bretlandi. Þau Jack kynntust á stefnumóta- forritinu Tinder sem kemur með uppástungur að maka í nágrenninu og segir Rebekka litlu hafa munað að þau misstu hvort af öðru. „Ég var með einhverja kílómetratakmörkun á leitarvél Tinder og Jack var þá á leið vestur á Flateyri að hitta vini sína, en hann starfaði áður á kúabúi Jónatans Magnússonar, bænum Hóli í Önundarfirði, frá árinu 2020 og hafði kynnst fólki fyrir vestan. Þannig ef hann hefði verið kominn lengra en kílómetrarnir sögðu til um á Tinder hefðum við ef til vill aldrei hist.“ „En við fundum hvort annað,“ segja þau brosandi og rifja upp fyrsta stefnumótið fyrir nær tveimur árum. „Það var hávaðarok og við ákváðum að fara og fá okkur ís, nema ísinn lenti allur framan í Rebekku,“ segir Jack og má ætla að einhverjir vonbiðlar hefðu látið sig hverfa. Jack lét hins vegar engan bilbug á sér finna enda Rebekka ótvíræður kvenkostur í hans augum og þau eiga bæði auðvelt með að sjá spaugilegu hliðarnar á lífinu. Brösótt byrjun en framtíðin björt „Ég hóf annars ferilinn sem hermaður í Bretlandi sem gekk ekki þrauta- laust. Þar kom í ljós að ég er með óreglulegan hjartslátt, glímdi við síþreytu, auk þess að ég sleit liðband í hné og fótbrotnaði svo að lokum. Ég er kannski ekki gerður fyrir herþjónustuna,“ segir Jack og glottir. Hann þrjóskaðist við um átta ára skeið, en þótt herþjónustan hafi verið draumurinn kitlaði landbúnaðurinn einnig. Áður en að hann flutti hingað til lands fyrir um fimm árum hafði hann reynt fyrir sér á nautgripabúum í Ástralíu og á Bretlandi, sótt námskeið í klaufsnyrtingum og sæðingum auk þess að stunda nám í hjarðstjórnun mjólkurkúa (e. dairy heard management) við háskólann í Chester í Bretlandi. Fór svo að Jack útskrifaðist á tímum Covid- veirunnar og fékk þá kunnáttu sína í gegnum vinnu metna. „Áhugi minn fyrir nautgripum vaknaði þegar ég neyddist til að aðstoða á kúabúi fyrrverandi kærustu minnar, en ég get ekki sagt að samband mitt við kýr hafi verið ást við fyrstu sýn. Ég man eftir því að hafa stokkið yfir girðingu á flótta frá þeim, nær verið búinn að gera í buxurnar af hræðslu við þessi stóru dýr. Breskar kýr vega venjulega vel yfir hálft tonn, eða 550–700 kg, á meðan íslensk meðalkýr er um 450 kg.“ Aðspurð segja þau Jack sjá að langmestu leyti um búið sjálfur enda vinni Rebekka utan heimilisins eins og er. Þau hafi þó fengið verktaka í heyskap því þau hafa ekki enn komið sér upp öllum þeim vélabúnaði sem þarf til verksins. Þau halda að jafnaði um fjörutíu mjólkurkýr í lausagöngufjósi þar sem þær ganga í mjaltaþjón að vild og hafa greiðan aðgang að fóðri og vatni. Kálfar njóta þarna góðs atlætis í stíum sínum og sækja í kálfafóstru að vild. Jack segist panta mjólkurdufts- blöndu frá Danmörku í stað þess að nota íslenskt duft. „Þeir fá skitu, greyin, af því íslenska og verða ekki alltaf langlífir eða hraustir, enda ýtir slæm uppistaða næringar á fyrsta ári undir dauðsföll eða veikindi í framtíðinni.“ Kálfadauði og kvótakaup Hlutfall dauðfæddra kálfa hjá fyrsta kálfs kvígum er hátt og bendir Jack á að eitt vandamálanna sé það að kvígurnar séu smáar og hafi ekki líkamlegan burð til þess að ala fullvaxta kálfa. Leggja þurfi góðan grunn að öllum gripum upp á framtíðina því það skilur ekkert eftir sig að gæta ekki vel að fyrstu gerð. „Ef kálfar eru veikburða þá eru þeir ekki að fara að bera hraust afkvæmi. Og ef þú færð ekki hraust dýr, af hverju ertu þá að eyða peningum í þennan rekstur? Íslenska kýrin er góð mjólkurkýr sem þyrfti eins og önnur dýr að vera eins mikið úti við og hægt er, að auki þarf aðgætni, gott fóður og góðan aðbúnað í heild. Þannig vaxa þau best og við fáum sem mest út úr hverjum grip,“ segi Jack, sem hyggur á aukna framleiðslu í náinni framtíð. „Mér hefur reiknast það til að við þyrftum að vera með um 55 mjólkandi kýr, auk þess að stækka fjósið ef við eigum að geta uppfyllt mjólkurkvótann. Hann er 400 þúsund lítrar en eins og er náum við 226 þúsund lítrum árlega. Stækkun plús róbótar mun kosta okkur 29 milljónir króna ef ég hef reiknað þetta rétt,“ segir Jack, sem þó er harðákveðinn í að gefast ekki upp. „Vaxtalaust lán kæmi sér þarna mjög vel. Ef við hefðum þess háttar viðbót gætum við fengið gróða úr rekstrinum hjá okkur sem svo færi beint í búið. Þannig hagnast smátt og smátt án mikils halla á ársgrundvelli. Ég geng í öll störf sjálfur, enda er líka mikilvægt að við séum ekki bæði yfir okkur þreytt og stressuð. Mér þykir líka annars gaman að elda og hef komist að því að það er mjög mikilvægt að Rebekka borði reglulega staðgóðar máltíðir svo hún verði nú ekki „hangry“,“ segir Jack hlæjandi. Eins og er borga þau aðeins vexti af láninu en áætlað er að eftir þrjú ár hefji þau fullar greiðslur. Þau stefna að því að innan þess tíma verði framleiðslan komin á gott skrið og þau geti uppfyllt mjólkurkvótann. „Þetta er auðvitað kannski óraun- hæfur draumur, en það má halda í vonina. Málið er bara það að ef eitthvað fer úrskeiðis, mjólkurróbóti skemmist eða annað, þá getur allt farið á hliðina því við höfum ekkert almennilegt fjármagn til að standa í ströngu. Ekki enn að minnsta kosti. Mánaðarlegur rekstur eins og er skilur lítið eftir.“ Jack segir að í raun sé það ekki það skynsamlegasta að taka við búi á miðju sumri eins og þau gerðu. Hólmahjáleiga: Með bjartsýni og gleði að vopni – Rebekka K. Björgvinsdóttir og Jack W. Bradley festu kaup á kúabúi í sumar Það væsir ekki um búfénaðinn á bænum enda metnaður lagður í að ala hrausta og langlífa gripi. Þau Rebekka og Jack eru bjartsýn á framtíðina enda þýðir ekkert annað. Myndir / sp og aðsent Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is Kálfarnir á bænum fá danskan sopa. Ný útlán Evrópski fjárfestingasjóðurinn (EIF) og Byggðastofnun undirrituðu sam- komu lag þann 6. júní sl. um bak- ábyrgðir lána til lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Ábyrgðir EIF, sem njóta stuðnings InvestEU áætlunar Evrópu- sambandsins, munu gera Byggða- stofnun kleift að veita allt að 3,2 milljarða króna í formi nýrra útlána með sveigjanlegri skilmálum en áður. Fjármagninu er einkum ætlað að styðja við unga bændur, viðkvæm byggðar- lög, nýsköpun og konur í frumkvöðla- starfsemi. Kálfadauði Í skýrslu RML, Kálfadauði hjá fyrsta kálfs kvígum, frá árinu 2021 kemur fram að um 64% bænda ætli kálfa stóra við burð og telji það líklegustu orsök þess að þeir fæðist dauðir eða drepist í fæðingu. Á fagfundi nautgriparæktar sem haldinn var á Hvanneyri í vor kom Þórdís Þórarinsdóttir, ráðunautur í búfjárrækt hjá RML, inn á að einungis fæddust að jafnaði um 70–75% lifandi kálfa við fyrsta burð mæðra sinna, eða af þeim 26–27 þúsundum sem fæðast árlega eru 4.500 eða svo sem lifa ekki..
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.