Bændablaðið - 10.10.2024, Síða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024Viðtal
Zophonías Friðrik Gunnarsson og
Hrafnhildur Björk Guðgeirsdóttir eru
rófnabændur á Læk í Ölfusi. Þau tóku við
jörðinni í byrjun árs 2020 og hófu skömmu
síðar rófnabúskap fyrir hálfgerða tilviljun.
Zophonías Friðrik, sem er yfirleitt kallaður
Friðrik, á ættir að rekja til Lækjar. Amma
hans og afi voru þar bændur og tóku faðir og
föðurbróðir Friðriks við jörðinni í kringum
aldamótin. Hrafnhildur og Friðrik keyptu
hlut föðurbróðurins í lok árs 2019 og fluttu
í kjölfarið á Læk.
Síðla vetrar 2020 fréttu Friðrik og
Hrafnhildur af því að nágrannarnir Hrafnkell
Karlsson og Sigríður Gestsdóttir á Hrauni
hygðust hætta í búskap, en þau höfðu verið
rófnabændur um árabil. Ungu hjónin ákváðu
að semja við þau um kaup á öllum útbúnaði til
rófnaræktunar þar sem þau áttu stórt hús á Læk
sem þau vildu nýta undir einhverja starfsemi.
Þetta vor sáðu þau sínum fyrstu gulrófum.
Þekkingin skipti sköpum
Ákvörðunin að gerast rófnabændur var ekki
erfið þó þau hafi aldrei stefnt í þessa átt. Þá hafi
verið mikil lyftistöng að fá allan nauðsynlegan
búnað strax í byrjun, þó þau hafi endurnýjað
flest síðan þá. „Ef við hefðum ekki haft þetta
start sem við höfðum er ég ekki viss um að
þetta hefði gengið eins vel,“ segir Friðrik, en
aðgengið að þekkingu Hrafnkels og Sigríðar
skipti ekki síður sköpum.
Þeim fannst fyrsta árið vera mikill sprengur
þar sem þau þurftu að flytja allan búnaðinn á
nýjan stað og sá um vorið, en um sumarið hafi
tekið við mikil vinna við að koma upp vinnslu
og kæligeymslu. Samhliða þessu voru þau
í öðrum störfum, en þau hafa unnið í ýmiss
konar verktöku ásamt því sem Hrafnhildur er
sveinn í háriðn.
Friðrik var kjörinn formaður Félags
rófnabænda á aðalfundi í vor. Hann segir að
það sé nokkur kraftur í stéttinni núna þar sem
ungt fólk hefur tekið við búi á nokkrum bæjum.
Á landinu eru tíu til tólf framleiðendur, en hann
segir þá tölu mismunandi milli ára. Hann gerir
sér vonir um að félagið muni eflast á næstunni,
en starfsemi þess hefur verið takmörkuð
undanfarin ár.
Þrír til fjórir hektarar
Gulrófnagarðarnir á Læk voru fjórir hektarar
í sumar, en hafa verið tveir og hálfur fram að
því. Uppskeran er á bilinu 50 til 100 tonn,
en hún er breytileg eftir árferði. Á haustin er
byrjað að undirbúa jarðveginn, ýmist með því
að tæta eða plægja. Í apríl og maí á sér stað
frekari jarðvinnsla og er rófunum sáð þegar
hætta á næturfrosti minnkar. Sérstakir netdúkar
eru lagðir yfir garðana eins fljótt og hægt er,
en þeir koma í veg fyrir aðgang kálflugu og
auka hita á plöntunum.
Yfir sumarið tekur við eftirlit og kemur
stundum fyrir að þau þurfa að grípa inn í
með úðun gegn sníkjudýrum eða illgresi. Þau
reyna að forðast að reyta arfa með höndum
sem Friðrik segir óheyrilega leiðinlegt verk
sem auki hættu á aðgengi kálflugu.
Uppskera í byrjun ágúst
Fyrsta uppskeran hefur stundum verið í
kringum verslunarmannahelgi, en þá eru rófur
sem hafa náð fullri stærð handtíndar. Þær sem
eru minni fá að vaxa lengur og er allt tekið upp
með vélum á haustin. Upptökuvélin, sem er
knúin áfram af dráttarvél, er með vinnsluborð
þar sem þrír aðilar geta hreinsað frá mestu
óhreinindin og er uppskerunni safnað í sekki.
Þegar rófurnar eru fluttar heim fara þær
beint í kæli þar sem hitastigið er hálfri gráðu
yfir frostmarki og rakastigið hátt. Rófurnar
geymast best ef þær verða fyrir sem minnstu
hnjaski og eru þær því ekki hreinsaðar og
snyrtar fyrr en kemur að því að afgreiða
pantanir. Geymsluþolið á þessu grænmeti er
með allra mesta móti og geta rófnabændur átt
birgðir í allt að ár. Uppskera síðasta árs á Læk
kláraðist að mestu leyti í mars á þessu ári.
Við þrif fara rófurnar í gegnum tromlu sem
veltir þeim upp úr vatni. Þaðan fara þær á
flokkunarband þar sem fjórir til fimm aðilar
geta staðið og skorið af rótina og toppinn
ásamt því að snyrta frá smáar rætur og skilja
frá ósöluhæf eintök.
– Framhald á síðu 24.
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Ungir gulrófnabændur í Ölfusi
Zophonías Friðrik Gunnarsson og Hrafnhildur Björk Guðgeirsdóttir hafa byggt upp gulrófnabúskap
á Læk í Ölfusi frá árinu 2020. Með því tókst þeim að koma starfsemi í stórt húsnæði sem var
ekki í mikilli notkun. Myndir / ál
Til að auðvelda uppskeruna er stöngullinn af
rófunum sleginn nokkrum dögum áður.
Snyrtar og þvegnar rófur tilbúnar á markað.
Rófur varðveitast best ef þær eru ekki þvegnar. Þær eru geymdar í stórsekkjum
sem eru settir beint í kæli eftir uppskeru.