Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 53
53Líf & starfBændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024
Bleikur er orðinn einn
einkennislitur október, þökk
sé Bleiku slaufunni, árlegu
árvekni- og fjáröflunarátaki
Krabbameinsfélagsins, tileinkað
baráttunni gegn krabbameini
hjá konum.
Fjórða árið í röð hefur Birgir
Steinn Birgisson hjá Garðyrkju-
stöðinni Ficus í Hveragerði
framleitt Októberstjörnuna en hluti
ágóða af sölu hennar rennur beint
til Krabbameinsfélagsins.
Í febrúar fékk Birgir útgefið
einkaleyfi á notkun orðsins
Októberstjarnan. Heitið notar hann
um fagurbleikt yrki jólastjörnu
´J´Adore Pink´sem blómstrar í
október. Framleiðsla blómsins
hefur vaxið ár frá ári síðan Birgir
tók upp á framleiðslu þess árið 2020. Í ár framleiðir hann rúmlega 4.000
Októberstjörnur sem verða fáanlegar nú í október í ýmsum verslunum um
land allt. Tíu prósent af söluandvirði Októberstjörnunnar mun renna til
Krabbameinsfélagsins. /ghp
Veitulausnir
ENDURVINNSLA Í 80 ÁR
Út er komin önnur bókin í ritröðinni
Sagnaþættir úr Borgarfirði.
Fjórir snillingar er heiti bókar sem
Helgi Bjarnason blaðamaður hefur
tekið saman og gefur nú út en hún
er önnur í ritröð
sem nefnd er
Sagnaþættir úr
Borgarfirði.
Í fréttatil-
kynningu segir
að bókin hafi að
geyma persónu-
þætti þar sem
sagt sé frá ævi
og störfum
nokkurra áhugaverðra einstaklinga
sem settu svip sinn á samfélagið í
Borgarfirði á ýmsum tímum. Fjallað
er um tvo bændahöfðingja sem stóðu
framarlega í helstu framfaramálum
héraðsbúa á fyrri hluta 20. aldarinnar
og tvö skáld sem Helgi telur vert
að lyfta upp á sjónarsviðið, annað
átti sitt blómaskeið fyrir aldamótin
1900 og hitt um aldamótin 1600.
Allt hafi þetta verið yfirburðamenn,
hver á sínu sviði. Þeir karlar sem eru
í aðalhlutverkum í bókinni eru Davíð
Þorsteinsson, stórbóndi á Arnbjargar-
læk, Kristján F. Björnsson, bóndi
og byggingarmeistari á Steinum,
Sigurður Eiríksson, afkastamikið
skáld og þýðandi og Bjarni skáldi,
eða Bjarni Borgfirðingaskáld.
Bókin er fáanleg hjá höfundi. /sá
Fjórir
snillingar
Fjögur þúsund
Októberstjörnur
Birgir Steinn Birgisson innan um Októberstjörnurnar en hluti af ágóða sölu
hennar rennur til Krabbameinsfélagsins. Myndir / ghp