Bændablaðið - 10.10.2024, Síða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024 Á faglegum nótum
Með tilkomu sífellt flóknari og fjölbreyttari farartækja
sem eru búin sérhæfðum rafbúnaði,
hefur þörfin fyrir öfluga og trausta rafgeyma aukist.
rafgeymar
Skannaðu QR kóðann
og finndu rétta rafgeyminn
fyrir þitt farartæki
Fyrirtækjaþjónusta Olís
Alvöru fólk með alvöru þekkingu og reynslu
Hafðu samband við sérfræðinga Olís
í síma 515 1100 eða pontun@olis.is
Geldingar
lambhrúta
Athygli sauðfjáreigenda er vakin á því að geldingar
leikmanna á öllu búfé eru bannaðar.
Dýralæknar einir mega gelda lambhrúta og önnur
dýr og skal það gert í deyfingu og gefið verkjastillandi
lyf eftir þörfum. Í reglugerð 1066/2014 segir:
8. gr. Aðgerðir.
Dýralæknum er einum heimilt að afhorna kindur
og geitur þannig að fari inn í sló og gelda karldýr.
Skylt er að nota deyfingu við þær aðgerðir og nota
skal langverkandi verkjalyf þar sem það á við.
Matvælastofnun getur krafist upplýsinga um allar aðgerðir sem hafa verið
gerðar á sauðfé eða geitfé sem eru á búinu eða koma til slátrunar, þar með
talið hornatöku og geldingar.
Það er eitt af meginverkefnum Matvælastofnunar að fylgjast með að
frumframleiðendur, þ.e. dýraeigendur, fari að þeim lögum og reglugerðum
sem í gildi eru. Eftirlit með geldingum búfjár er eitt þessara verkefna.
Þetta eftirlit fer fram á tveimur stöðum, annars vegar í sláturhúsum og hins
vegar heima á býli. Í sláturhúsum er athugað hvort innleggjandi hafi sent
sauði til slátrunar og þá hver hafi gelt þá. Við eftirlit Matvælastofnunar með
sauðfjárbúum er það einnig fastur liður að athugað er hvort á viðkomandi
búi séu sauðir og þá hver hafi gelt þá. Viðurlög við ólöglegum geldingum
sauðfjár geta verið stjórnvaldssekt.
Höfundur er sérgreinadýralæknir jórturdýra hjá Matvælastofnun.
Sigurbjörg Ólöf
Bergsdóttir.
Viðurlög við ólöglegum geldingum sauðfjár geta verið stjórnvaldssekt.
Við byggjum á áralangri reynslu á því sviði.
Björgvin Guðjónsson, búfræðingur og löggiltur
fasteignasali, s. 510-3500 eða 615-1020,
bjorgvin@eignatorg.is
E i g n a t o r g b ý ð u r s é r h æ f ð a þ j ó n u s t u
v i ð v e r ð m ö t o g s ö l u á b ú j ö r ð u m
o g ö ð r u l a n d i , m e ð e ð a á n r e k s t r a r.