Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 22

Bændablaðið - 10.10.2024, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. október 2024Viðtal Zophonías Friðrik Gunnarsson og Hrafnhildur Björk Guðgeirsdóttir eru rófnabændur á Læk í Ölfusi. Þau tóku við jörðinni í byrjun árs 2020 og hófu skömmu síðar rófnabúskap fyrir hálfgerða tilviljun. Zophonías Friðrik, sem er yfirleitt kallaður Friðrik, á ættir að rekja til Lækjar. Amma hans og afi voru þar bændur og tóku faðir og föðurbróðir Friðriks við jörðinni í kringum aldamótin. Hrafnhildur og Friðrik keyptu hlut föðurbróðurins í lok árs 2019 og fluttu í kjölfarið á Læk. Síðla vetrar 2020 fréttu Friðrik og Hrafnhildur af því að nágrannarnir Hrafnkell Karlsson og Sigríður Gestsdóttir á Hrauni hygðust hætta í búskap, en þau höfðu verið rófnabændur um árabil. Ungu hjónin ákváðu að semja við þau um kaup á öllum útbúnaði til rófnaræktunar þar sem þau áttu stórt hús á Læk sem þau vildu nýta undir einhverja starfsemi. Þetta vor sáðu þau sínum fyrstu gulrófum. Þekkingin skipti sköpum Ákvörðunin að gerast rófnabændur var ekki erfið þó þau hafi aldrei stefnt í þessa átt. Þá hafi verið mikil lyftistöng að fá allan nauðsynlegan búnað strax í byrjun, þó þau hafi endurnýjað flest síðan þá. „Ef við hefðum ekki haft þetta start sem við höfðum er ég ekki viss um að þetta hefði gengið eins vel,“ segir Friðrik, en aðgengið að þekkingu Hrafnkels og Sigríðar skipti ekki síður sköpum. Þeim fannst fyrsta árið vera mikill sprengur þar sem þau þurftu að flytja allan búnaðinn á nýjan stað og sá um vorið, en um sumarið hafi tekið við mikil vinna við að koma upp vinnslu og kæligeymslu. Samhliða þessu voru þau í öðrum störfum, en þau hafa unnið í ýmiss konar verktöku ásamt því sem Hrafnhildur er sveinn í háriðn. Friðrik var kjörinn formaður Félags rófnabænda á aðalfundi í vor. Hann segir að það sé nokkur kraftur í stéttinni núna þar sem ungt fólk hefur tekið við búi á nokkrum bæjum. Á landinu eru tíu til tólf framleiðendur, en hann segir þá tölu mismunandi milli ára. Hann gerir sér vonir um að félagið muni eflast á næstunni, en starfsemi þess hefur verið takmörkuð undanfarin ár. Þrír til fjórir hektarar Gulrófnagarðarnir á Læk voru fjórir hektarar í sumar, en hafa verið tveir og hálfur fram að því. Uppskeran er á bilinu 50 til 100 tonn, en hún er breytileg eftir árferði. Á haustin er byrjað að undirbúa jarðveginn, ýmist með því að tæta eða plægja. Í apríl og maí á sér stað frekari jarðvinnsla og er rófunum sáð þegar hætta á næturfrosti minnkar. Sérstakir netdúkar eru lagðir yfir garðana eins fljótt og hægt er, en þeir koma í veg fyrir aðgang kálflugu og auka hita á plöntunum. Yfir sumarið tekur við eftirlit og kemur stundum fyrir að þau þurfa að grípa inn í með úðun gegn sníkjudýrum eða illgresi. Þau reyna að forðast að reyta arfa með höndum sem Friðrik segir óheyrilega leiðinlegt verk sem auki hættu á aðgengi kálflugu. Uppskera í byrjun ágúst Fyrsta uppskeran hefur stundum verið í kringum verslunarmannahelgi, en þá eru rófur sem hafa náð fullri stærð handtíndar. Þær sem eru minni fá að vaxa lengur og er allt tekið upp með vélum á haustin. Upptökuvélin, sem er knúin áfram af dráttarvél, er með vinnsluborð þar sem þrír aðilar geta hreinsað frá mestu óhreinindin og er uppskerunni safnað í sekki. Þegar rófurnar eru fluttar heim fara þær beint í kæli þar sem hitastigið er hálfri gráðu yfir frostmarki og rakastigið hátt. Rófurnar geymast best ef þær verða fyrir sem minnstu hnjaski og eru þær því ekki hreinsaðar og snyrtar fyrr en kemur að því að afgreiða pantanir. Geymsluþolið á þessu grænmeti er með allra mesta móti og geta rófnabændur átt birgðir í allt að ár. Uppskera síðasta árs á Læk kláraðist að mestu leyti í mars á þessu ári. Við þrif fara rófurnar í gegnum tromlu sem veltir þeim upp úr vatni. Þaðan fara þær á flokkunarband þar sem fjórir til fimm aðilar geta staðið og skorið af rótina og toppinn ásamt því að snyrta frá smáar rætur og skilja frá ósöluhæf eintök. – Framhald á síðu 24. Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is Ungir gulrófnabændur í Ölfusi Zophonías Friðrik Gunnarsson og Hrafnhildur Björk Guðgeirsdóttir hafa byggt upp gulrófnabúskap á Læk í Ölfusi frá árinu 2020. Með því tókst þeim að koma starfsemi í stórt húsnæði sem var ekki í mikilli notkun. Myndir / ál Til að auðvelda uppskeruna er stöngullinn af rófunum sleginn nokkrum dögum áður. Snyrtar og þvegnar rófur tilbúnar á markað. Rófur varðveitast best ef þær eru ekki þvegnar. Þær eru geymdar í stórsekkjum sem eru settir beint í kæli eftir uppskeru.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.