Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Blaðsíða 5

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Blaðsíða 5
VETRARVERTÍÐIR í ÓLAFSVÍK ÁRIN 1942 TIL1946 Hér á eftir eru birtar aflatölur og frétfir af vertföum I upphnfi fimmta áratugarins. Þetta tímabil varö fyrir valinu, vegna þess, aö þetta eru elstu heimildir um vetrarvertiðir sem nú varö aö þetta eru elstu helmlldir um vetrarvertiöir sem um getur. 1942 Á vertíðinni 1942, voru gæftir með lakara móti. Með- al róðrafjöldi yfir vertíðina var 47 róðrar. Gerðir voru út frá Ólafsvík 4 þilfarsbátar og 4 opnir vélbátar. Aflahæsti báturinn var Snæfell. Mestur dagsafli var 9000 kg. Lifrarfengur var 12.084 lítrar. Aflaverðmæti var 91 þúsund krónur. Hásetahlutur var 3.300 krónur. Formaður á Snæfellinu var Víglundur Jónsson. Viglundur Jónsson. 1943 Engar heimildir fundust fyrir árið 1943. 1944 Fimm þiljaðir bátar voru geröir út frá Ólafsvík og auk þess tveir opnir bátar. Afla- hæsti báturinnvarSnæfell.en Snæfellið aflaði alis 327.910 kg. af fiski. Lifrarfengur Snæ- fellsins var 14.712 lítrar. For- maður var Víglundur Jónsson. 1945 Segja má, að aðeins þrír bátar hafi verið gerðir út frá Ólafsvík á árinu 1945. Tveir aðrir fóru að vísu örfáa róðra, en vegna vélabilana og ýmissa annarra óhappa urðu þeir að hætta. Eingöngu var róið með línu og allur fiskur slægður. Afla- hæsti báturinn var Framtíðin, 18 tonna bátur. Framtíðin fór 85 róðra og fiskaði 540 tonn. 26.000 lítrar af lifur fóru á land. Hásetahlutur var 8.500 krónur. Skipstjóri á Framtíð- inni var Lárus Sveinsson, en þá var hann 26 ára. Snæfell, 18 tonna bátur fiskaði 502 tonn og 24000 lítra af lifur. Hásetahlutur var8.000 krónur. Víkingur , 13 tonna bátur fiskaði 170 tonn og 9.500 lítra af lifur. Hásetahluturá Víkingi varð 3.000 krónur. Lárus Svelnsson. 1946 Gerðir voru út 4 bátar, 13 til 18 tonn hver. Mestan afla í róðri fékk Hrönn II, 13.335 af slægðum fiski með haus. Snæfell var aflahæsti báturinn. Vertíðarafli Snæ- fellsins var 490.565 kg. slægð með haus. Lifrarfengur var 24.365 lítrar. Hásetahlutur 8.400 krónur. Skipsstjóri á Snæfellinu var Víglundur Jónsson. Erfitt reyndist að losna við aflann, að eigi bar ósjaldan við, að bátarnir yrðu að fara með hann til Stykkishólms, Grundarfjarðar eða Hellis- sands. Hefðu bátarnir jafnan getað landað í Ólafsvík, er vafalítið að vertíðin í Ólafsvík hefði orðið óvenjulega góð. 5

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.