Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 14.06.1987, Page 25
ferugr: fjörutíu faðm langur.
Út reri elnn á báti
Ingjaldr á skinnfeldi.
Týndi átján önglum
Ingjaldr í skinnfeldi
og fertugu fœri
Ingjaldr f skinnfeldi.
Aftr komi aldrei síöan
Ingjaldr I skinnfeldi.
Mönnum brá mjög við þetta en það hafa menn fyrir satt að Hetta tröllkona muni
þetta kveðið hafa því hún ætlaði, sem hún vildi að væri, að Ingialdur skyldi aldrei
aftur hafa komiö sem hún hafði ráð til sett.
En er Ingjaldur var nálega að bana kominn sá hann hvar maður reri einn á báti.
Hann var í gráum og hafði svarðreip um sig. Ingjaldur þóttist þar kenna Bárð vin
sinn. Hann reri snarlega að skipi Ingjalds og mælti: „Líttu eru staddur kumpán minn
og voru það mikil undur að þú, jafnvitur maður, lést slíka óvætt ginna þig sem Hetta
er og far nú á skip með mér ef þú vilt og prófa að þú fáir stýrt en eg mun róa.“
Ingjaldur gerði svo. Hvarf Grímur þá á bátinn er Bárður kom. Þykir mönnum sem
það muni Þórverið hafa. Bárðurtók þá að róa allsterklega og allt þartil er hann dró
undir land. Flutti Bárður Ingjald heim og var hann mjög þjakaður og varð alheill en
Bárður fór heim til síns heimilis.
(Heimild: íslendingasögur, útgáfa Svarts á hvítu)
?
Óskum sjómönnum
til hamingju
með daginn.
Hellissandur, Neshrepur
utan Ennis
Óskum sjómönnum og
fjölskyldum allra
heilla á hátíðisdegi
þeirra.
KAUPFÉLAG ÓLAFSVÍKUR
ÓLAFSBRAUT 20 355 ÓLAFSVÍK SlMi 93-6360 93-6204 NNR. 5579-361 1
25