Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1942, Page 50

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1942, Page 50
42 unum fyrir neðan, stundum fast að því 50 cm háar eftir sumarið. Næsta vor eru þessir nýgræðingar allir horfnir. — Sauðartönnin hafði séð fyrir þeim, þó að hún næði ekki til bræðranna og mæðranna á bergsyllunni fyr- ir ofan. Hallgrímur Ólafsson, bóndi í Holti í Fellum, greindur maður og athugull, hefir sagt mér, að á hverju sumri finnist birkiplöntur svo þúsundum skipti í börðum og moldarflögum niður við Lagarfljót, einkum eru torf- ristuflög öll þétt sett. Fyrir nokkurum árum flutti Hall- grímur nokkurar þessara plantna í girtan reit heim við bæ sinn, eru þær nú orðnar að hinum myndarlegustu trjám. Hallgrímur telur að plönturnar vaxi upp af fræi, er berist frá Hallormsstaðarskógi, en hann er nokkuru sunnar í Hér- aðinu og skilur Lagarfljót á milli — þriggja til fjögurra kílómetra breitt. Upp úr Norðurdal, inn af Fljótsdal, gengur dalverpi til hálendisins, meðfram Jökulsá, er Kleyfardalur heitir. Dal- verpi þetta er skógi vaxið, að vísu ekki hávöxnum vegna þess, hve hátt það er yfir sjó. Skógur þessi er höggvinn nokkuð, en fjarlægðin frá bæjum verndar hann að nokkuru fyrir ágangi búfjár og það eitt virðist nægja til þess að tryggja honum lífsskilyrði, þótt í hálendinu sé. Á Eiðum óx til forna mikill skógur og gereyddist skógurinn ekki fyrr en nokkuru eftir næst síðustu aldamótý' Árið 1927 var fyrst hafizt handa um að friða land það, sem næst er Eiðaskóla, og hinn forni Eiðaskógur hafði áður vaxið. Þessi fyrsta tilraun hefir borið þann árangur, að landið innan girðingarinnar er þéttvaxið birkikjarri. Hæstu hríslurnar hafa náð þriggja metra hæð, og fjöldi ber þeg- ar fullþroskað fræ. Meðal ársvöxtur þessara afkomenda hins forna Eiðaskógar er um 20—50 cm, svo að sýnt er að þeir verða engir verrfeðrungar, er stundir líða. Árið * Sjá Fljótsdælasögu 31. kap., Sigfús Sigfússon: fslenzkar þjóðsögur, 1. bls. 81—85, porv. Thor.: Landafrs. IIIbís 80 og Búnaðarrit 8. ár., bls. 33 n. n.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.