Skógræktarritið - 15.10.2019, Page 24
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201922
Til að kryfja málið til mergjar (bókstaf-
lega) þá skar ég í greinar og brum í kalna
hluta trjánna (6. mynd). Sprotarnir voru rakir
og vaxtarvefurinn undir berkinum grænn.
Vatni hafði verið þrýst upp í greinarnar
(sem gerist að vori hjá birki og hlyn en fáum
öðrum trjátegundum) sem var til marks um
að þær voru óskemmdar. Brumin voru hins
vegar dauð, svört að innan.
Eitt tiltekið tré sem ég hafði flutt í
garðinn úr Hallormsstaðaskógi þegar við
fluttum á Höfða árið 1994 kól svona í
tvígang. Í fyrra skiptið var ég ekki mikið
að velta því fyrir mér, enda voru nýjar
greinar ekki lengi að vaxa upp fyrir þær
kölnu. Þegar það svo gerðist í annað skipti
vorið 2017 hafði ég tekið eftir því haustið
áður (2016) að það tré var með einstaklega
mikið birkiryð. Fór ég þá að íhuga hvort
þar geti verið tengsl á milli. Tréð var orðið
mun lægra en nágrannar sínir og ég felldi
það.
Varanleg áhrif á birkið
Fyrir fáum árum síðan fór ég að taka eftir
undarlegu kali í birki á Höfða á Völlum.
Það lýsti sér þannig að engin brum sprungu
út á greinum á efri hluta trésins (4. mynd).
Birkið á Höfða er gjarnan margstofna
og ekki hátt í loftinu og svona kal var
eingöngu á frekar ungum og runnkenndum
trjám, sem þó höfðu verið í góðum vexti
og virst heilbrigð að öðru leyti. Kalið var
þannig að draga mátti lárétta línu í gegnum
krónu trésins og þar fyrir ofan voru öll
brum dauð en fyrir neðan laufgaðist tréð
eðlilega (5. mynd). Mér datt í hug að
þetta gæti tengst snjóalögum, þ.e. að snjór
hafi hlíft neðri hluta trésins í einhverjum
frosthörkum sem ollu kali á því sem stóð
upp úr. Vandamálið var að lárétta línan
sem skildi á milli feigs og ófeigs var bæði í
misjafnri hæð á trjám á sama svæði og oft í
meiri hæð en snjódýptin náði nokkru sinni
um veturinn.
5. mynd. Undarlegt kal í birki eins og lína hafi verið dregin um krónuna. Línan er í um 2 m hæð, en snjór nær aldrei
þeirri dýpt á þessum slóðum. Mynd: ÞE