Skógræktarritið - 15.10.2019, Side 62

Skógræktarritið - 15.10.2019, Side 62
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201960 skóginum er að fá greinalausa og kvistlausa boli sem eykur verðgildi afurðanna. Viðurinn er eftirsóttur auk þess sem það er algengt borgartré. Ganga um hávaxinn og þéttan beykiskóginn gaf ámóta tilfinningu og að ganga um dómkirkju þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja. Þegar horft var upp milli trjánna sáust topparnir bærast. Það hallaði að degi og eftir viðburða- ríkan dag héldum við til Jaca. 20. október – Þjóðgarðurinn í Ordesa Eftir morgunverð var haldið af stað í átt að þjóðgarðinum í Ordesa, kenndum við dalinn og gljúfrin sem við fetuðum okkur eftir í norðurátt. Garðurinn var stofnaður svo snemma sem 1918 og var svo stækkaður árið 1982 og tekur nú yfir 156 km2. Frá árinu 1997 hefur Ordesa verið á Heimsminjaskrá UNESCO. Hér var Oscar á heimavelli þar sem hann hefur unnið að rannsóknum á skógum og gróðurfari í garðinum sl. þrjú ár. Fyrirhugað er að birta greinagóða skýrslu um þessar rannsóknir eftir eitt til tvö ár. Það er hins vegar ekki á vísan að róa í þeim efnum sagði Oscar, þar sem stjórnvöld skera nú grimmt niður allar fjárveitingar á þessu sviði, staða sem hljómar jafnvel kunnuglega í okkar eyru. Þegar horft var upp snarbrattar hlíðarnar velti maður því fyrir sér hvernig skógur getur hafst við í slíkum bratta. Þrátt fyrir hornafræðina er skógarbeykið (Fagus sylvatica) mest áberandi en einnig töluvert af evrópuþin (Abies alba), skógarfuru (Pinus sylvestris), pyreneaeik (Quercus subpyrenaica) en auk þess var hér innan um minna af hengibjörk (Betula pendula) og ask (Fraxinus excelsior) auk nokkurra víðitegunda, m.a Salix angustifolia og ýmsar fleiri ónefndar tegundir. Um og ofan 2000 m var svo að finna bergfuruna sem við skoðuðum svo vel daginn áður, sem tróndi hæst allra trjátegunda á hæstu bríkum en þangað fórum við ekki heldur héldum okkur í dalbotninum. Kjörlendi trjátegunda í Pýreneafjöllum, samkvæmt hæð og landslagi. Mynd: Juan Manuel Rubiale

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.