Skógræktarritið - 15.10.2019, Side 48

Skógræktarritið - 15.10.2019, Side 48
SKÓGRÆKTARRITIÐ 201946 rækt, skipta aukabúgreinarnar einnig miklu máli og má segja að allar tengist þær á einhvern hátt skóginum og afurðum hans. „Ef við myndum hætta öllum aukabúgreinum sem við Helgi erum með og vera bara með kýrnar, væri það heldur þunn innkoma fyrir þessa fjölskyldu þannig að þessar aukabúgreinar skipta máli. Þá værum við líka komin í einhæfni sem við höfum engan áhuga á. Að grufla í hinu og þessu gerir lífið einhvern veginn skemmtilegt,“ segir Beate og Helgi tekur undir. „Við erum ekki heldur föst í þessari kapítalistaformúlu að við séum hér á þessu heimili bara með það markmið að græða pening og vaxa ár frá ári heldur að reyna að búa til betra heimili,“ segir Helgi. „Og skemmtilegra líf,“ bætir Beate við að lokum. Höfundur: EINAR ÖRN JÓNSSON vandfýsnar. Ég man t.d. ekki eftir að hafa séð kýr éta lerkitré eða greni. Einu sinni prófuðum við að setja greniplöntur niður í mikið beittann kúahaga og þær eru að vaxa þar upp,“ segir Helgi sem þó vill slá varnagla er kemur að beit í skóglendi. „Við höfum líka orðið vitni að því þegar skepnur sleppa inn í skjólbelti á einni nóttu og ná að valda stórtjóni og ef skjólbeltin eru opin að neðan veita þau ekki lengur skjól.“ Lauffóður í hörðum árum „Þó að skógræktin hér sé um 30 ára gömul hafa kýrnar ekki fengið að vera í mikilli návist við skóginn fyrr en kannski síðustu tíu ár. Mér finnst skemmtilegt hvað þær virðast sækja meira og meira með hverju ári í að éta t.d. laufblöð. Það er eins og þær hafi hægt og rólega verið að komast á bragðið og læra að teygja sig yfir girðingar til að ná í blöðin. Í Noregi var talað um að hafa lauffóður þegar menn voru búnir að heyja túnin og voru enn með of lítið fóður fyrir gripina. Þá voru skornar greinar af álmum og öskum og þeim hent ofan á heyið í hlöðunum,“ segir Beate og Helgi bendir á að hliðstæð dæmi megi finna hér á landi. „Ég var að lesa gamla ævisögu konu sem var alin upp í Fossseli í Þingeyjasýslum. Vetur einn gerði helvíti mikið harðræði og þá var gengið ansi nærri Fellsskógi. Þá þurfti að höggva allt sem upp úr stóð og gefa skepnunum og hungruð skepna étur allt. Þá tóku menn drumba og til þess að skepnurnar gætu étið þá, var sleggjum barið á börkinn til þess að losa hann. Þetta voru ekki beinlínis blíðar aðfarir en maður skilur það þegar fólk stendur frammi fyrir sulti og dauða. En það er ekki þannig í dag,“ segir Helgi. Af dæmi þeirra Helga og Beate má sjá að hægt er að hafa margvíslegar nytjar af ungskógi auk þess sem hann styður við og býr í haginn fyrir annan búskap, leiðir jafnvel af sér nýjar aukabúgreinar. Þó að aðalbúgreinin á Kristnesi sé nautgripa- Íslenskar vörur með íslenskum skógarilm hraundis.is Með þér og þinni heilsu

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.