Skógræktarritið - 15.10.2019, Side 73

Skógræktarritið - 15.10.2019, Side 73
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2019 71 Garðarsson kynnti starfsskýrslu félagsins stuttlega, en hún lá frammi á fundinum og Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands, fór yfir reikninga félagsins. Því næst sagði Þuríður Yngvadóttir, formaður Landgræðslusjóðs, frá því helsta úr starfsemi sjóðsins, en hún tók við formennsku sjóðsins af Guðbrandi Brynjúlfssyni í upphafi árs 2019. Óskar Guðmundsson fundarstjóri kynnti því næst tillögur að ályktunum og skipti þeim milli allsherjar- og skógræktarnefnda til umfjöllunar. Var Sigurður Einarsson, Skógræktar- félagi Hafnarfjarðar skipaður formaður skógræktarnefndar, en Sigríður H. Heiðmundsdóttir, Skógræktarfélagi Rangæinga, formaður allsherjarnefndar. Í kjörbréfanefnd voru skipaðar þær Kristín Davíðsdóttir og Elísabet Kristjánsdóttir, báðar frá Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar. Að þessum skyldustörfum loknum var komið að fræðsluerindum. Friðrik inn á mikilvægi áhugamannafélaga skógræktarfólks og fjallaði sérstaklega um hálfrar aldar starf Skógræktarfélags Kópavogs í því samhengi. Að ávarpi Kristins loknu tók Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri til máls. Fór hann yfir stöðu skógræktar í landinu nú, en miklar breytingar hafa orðið á henni með fyrirætlunum stjórnvalda í loftslags- málum. Kom hann meðal annars inn á aðgengi að landi og mannafla til gróður- setningar, framleiðslu skógarplantna, fjármögnun skógræktar og ásókn nýrra meindýra, t.d. í birki. Síðastur tók til máls Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs. Bauð hann fundargesti velkomna í Kópavog. Minntist hann á hin ýmsu grænu svæði í Kópavogi og sagði frá góðu samstarfi Kópavogsbæjar við Skógræktarfélag Kópavogs, en það á sér langa sögu. Að ávörpum loknum tóku við hefðbundin aðalfundarstörf. Jónatan Þorsteinn Sigmundsson í Elliðahvammi tók á móti fundargestum og sagði frá ræktun sinni að Elliðahvammi. Mynd: Sigurður Arnarsson

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.