Golf á Íslandi - 01.12.2014, Blaðsíða 12
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is
12
minna pláss krefst meiri hugsunar
Blade, fyrirferða minnsta 3ja hjóla kerran á markaðnum!
Kíktu í heimsókn, skoðaðu og prófaðu kerrurnar frá Big Max.
GOLFSKÁLINN | MÖRKINNI 3, 108 REYKJAVÍK | SÍMI 578-0120 | INFO@GOLFSKALINN.IS | OPIÐ 10:00-18:00 VIRKA DAGA OG 11:00-16:00 LAUGARDAGA
GÓÐ ÞJÓNUSTA | VANDAÐAR VÖRUR | BETRA VERÐ
BLADE
Wheeler, er frábær 4ja hjóla
kerra sem er ótrúlega einföld
í uppsetningu.
I-Q frá Big Max er létt og flott
3ja hjóla kerra, nokkrir litir í
boði.
Autofold er frábær valkostur
fyrir þá sem vilja vandaða og
öfluga 3ja hjóla kerru.
Verð: 32.800 krVerð: 29.800 kr
Mikið úrval af golfkerrum
í öllum verðokkum
Verð: 36.800 kr
Verð: 42.800 kr
Lite Max III er einföld og létt
3ja hjóla kerra.
Verð: 19.800 kr
Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum
komst naumlega í gegnum fyrsta stig úr-
tökumótsins fyrir Evrópumótaröðina með
því að leika á höggi undir pari (69-71-71-72)
eða 283 höggum. Mótið fór fram á Hardelot
vellinum í Frakklandi en alls var keppt á tíu
völlum á fyrsta stigi úrtökumótsins.
Compo de Golf El Saler völlurinn á Spáni
var næsti keppnisstaðurinn hjá Ólafi Birni
en hann lék samtals á +8 (75-71-77-73)
og endaði hann í 48. sæti. Aðeins 17 efstu
komust áfram á þessum velli en keppt var
á fjórum völlum samtímis á öðru stigi úr-
tökumótsins.
„Ég er að sjálfsögðu mjög svekktur yfir
úrslitunum en ég gerði mitt besta. Ég átti
flotta kafla í mótinu en of mörg klaufaleg
mistök komu í veg fyrir að ég næði tak-
markinu í þetta skiptið,“ sagði Ólafur eftir
mótið á Spáni en hann er með keppnisrétt á
Nordic League mótaröðinni á næsta tímabili.
Hann á einnig möguleika á að fá boð á mót á
Þórður Gissurarson úr GR náði ekki
að komast í gegnum annað stigið á úr-
tökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Þórður
endaði í 23. sæti á Frilford Heath vellinum á
Englandi á 1. stigi úrtökumótsins en þar lék
hann á 6 höggum undir pari (72-72-67-71)
eða 282 höggum. Hann náði sér alls ekki á
strik á fyrstu keppnisdögunum á Compo de
Golf El Saler vellinum á Spáni á öðru stiginu.
Hann lék fyrsta hringinn á 83 höggum (+11)
og kom sér í erfiða stöðu sem hann náði ekki
að bæta. Þórður endaði í 68. sæti en hann
lék hringina fjóra á (83-77-75-71)en 17 efstu
kylfingarnir komust á lokaúrtökumótið.
„Úrtökumótið var augljóslega vonbrigði
en það jákvæða var síðasti hringurinn þar
sem ég náði að sýna mitt rétta andlit,“ sagði
Þórður Rafn og viðurkennir að sjálfs-
traustið hafi ekki verið nógu gott í upphafi
mótsins. „Ég átti í nokkrum vandræðum með
sveifluna dagana fyrir mótið. Það er með því
versta sem getur gerst.“
Þórður er með keppnisrétt á ProGolf móta-
röðinni í Þýskalandi þar sem hann lék á
síðasta keppnistímabili. „Ég er reyndar að
velta ýmsum öðrum möguleikum fyrir mér.
Ég hef ekki enn ákveðið hvað ég mun gera.
Það gæti verið að ég fái boð um að leika á
einu eða tveimur mótum á Áskorendamóta-
röðinni og ég mun að sjálfsögðu spila á þeim
mótum ef það er í boði. Ég ætla að taka mér
smá frí á næstunni og fara yfir stöðuna,“
sagði Þórður Rafn Gissurarson.
Vonbrigði hjá
Þórði á Spáni
Ólafur bjartsýnn
þrátt fyrir mótlæti
Áskorendamótaröðinni. „Ég hef fulla ástæðu
til að vera bjartsýnn fyrir næsta tímabil. Ég
er staðráðinn í því að leggja enn harðar að
mér að ná mínum markmiðum,“ segir Ólafur
Björn.
Alexander Aron Gylfason úr GR tók
þátt í heimsmeistaramótinu í hraðagolfi
(SpeedGolf) sem fram fór í lok október á á
Bandon Dunes vellinum í Bandaríkjunum.
Alexander endaði hann í 27. sæti en hann
lék á 82 höggum og tími hans var 55.07
mínútur.
Eri Crum fagnaði sigri en hann lék á 76
höggum og það tók hann 46 mínútur og
eina sekúndu að ljúka við 18 holur. Aðeins
voru leiknar 18 holur en fyrsta umferðin
sem átti að fara fram á laugardaginn var
felld niður vegna hvassviðris og úrkomu.
Crum fékk par á 15 holum og hann var
að meðaltali 2 ½ mínútu að leika hverja
Alexander var
eldsnöggur með
18 holurnar
Arnór lék vel á opna spænska áhugamannamótinu
Arnór Snær Guðmundsson úr Golf-
klúbbnum Hamri á Dalvík náði bestum
árangri af íslensku keppendunum sem tóku
þátt á opna spænska unglingameistara-
mótinu. Mótið fór fram í lok október á
Bonmont vellinum við Barcelona og tóku
alls sex íslenskir kylfingar þátt – þar af tvær
stúlkur. Arnór endaði í 12.-13. sæti af alls
130 keppendum sem voru frá 16 þjóðum.
Arnór lék hringina þrjá á pari samtals (71-
72-73). Sigurvegarinn var Kristoffer Reitan
frá Noregi en hann lék á -10 samtals.
Stefán Þór Bogason, klúbbmeistari GR frá
því í sumar, endaði í 20.-27. sæti en hann lék
síðasta hringinn á -4 og (75-76-68) og var
samtals á +3. Stefán lék síðustu 9 holurnar
á -6 sem er stórkostlegur árangur. Henning
Darri Þórðarson úr GK endaði í 45.48. sæti
en hann lék samtals á +11 (76-76-75). Björn
Óskar Guðjónsson úr Kili Mosfellsbæ endaði
í 54.-60. sæti á +15 (79-78-74).
Helga Kristín Einarsdóttir (NK), Íslands-
meistari í höggleik í flokki 17-18 ára endaði
í 21. sæti á +22 samtals (83-74-82). Hafdís
Alda Jóhannsdóttir úr GK lék á (88-86-82)
höggum og endaði í 30. sæti á +40.
holu. Crum lék á sínum tíma með Stanford
háskólaliðinu þar sem Tiger Woods var
liðsfélagi hans. „Þú þarft að vera íþrótta-
maður til þess að vinna keppni á við þessa.
Það skiptir mig miklu máli að sigra á þessu
móti á þessum velli,“ sagði Crum sem var
samtals með 122.01 stig í þessari keppni.