Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 96

Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 96
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 96 PÚTTIN. Luke Donald. Hann nær hvað bestum árangri viku eftir viku og það hefur hjálpað honum að viðhalda stöðu sinni nálægt toppnum, þótt hann hafi verið að breyta sveiflunni hjá sér og hafi þess vegna ekki slegið boltann eins vel og áður. Við getum öll lært af Luke; hann er aldrei að drífa sig að pútta. Sjáið hvernig hann stillir sér upp á ákveðinn og einbeittan hátt. Hann undirbýr sig alltaf eins og það ferli er einfalt og þægilegt. Áhugamenn eru sjaldnast með ferli sem þeir endurtaka; stundum horfa þeir einu sinni á línuna, stundum sex sinnum. Luke gerir þetta alltaf eins og það framkallar stöðuga púttstroku sem skilar honum árangri. Hann er góður í að lesa brot og ákveða hraðann á púttinu. Þetta er nokkuð sem áhugamenn verða að æfa og framkalla; koma boltanum á þann hraða sem er réttur fyrir línuna sem þeir hafa ákveðið. GLOMPUHÖGG Brett Rumford Brett hefur hæfileikann til að fá nákvæmlega þá snertingu sem hann kýs og láta boltann springa upp úr sandinum með nákvæmni og stjórn. Hann stillir sér upp þannig að hann „sest“ á vinstra hnéð – það snýr í áttina að skotmarkinu og beygist út. Sveifla Bretts snýst í kringum vinstra hnéð, rétt eins og Seve gerði alltaf. Hann slær líka boltann með opnum kylfuhaus, eins og aðrir kylfingar sem eru frábærir í þessum höggum. Þeir opna kylfuna, taka gripið, og opna hana svo enn meira með snúningi handanna. Ef þú getur gert það, þá notar þú botninn á kylfuhausnum á réttan hátt og höggin verða betri. VIPP Steve Stricker Flestir myndu horfa á Phil Mickelson fyrir þessi högg. En þótt hann geti framkallað ótrúleg högg með fley- gjárni, þá er erfitt fyrir áhugamenn að tileinka sér aðferð hans. Mickelson beygir úlnliðina mikið og viðheldur þeirri hreyfingu og það er ekki auðvelt að endurtaka. Ég myndi frekar horfa á kylfing eins og Steve Stricker. Hann beitir úlnliðunum lítið og fyrir áhugamenn er það öruggasta aðferðin til að slá svona högg. Handleggir hans og efri hluti líkamans vinna vel saman; það er næstum því eins og hann sé með fótbolta milli handleggjanna – þeir hreyfast nánast ekki neitt og hann bara snýr fram og til baka. Hraðinn á þessum snúningi, frekar en staða úlnliðanna, ræður lengd höggsins og þessi aðferð er auðveldari til að ná stöðugleika. FLEYGHÖGG Zack Johnson Zack Johnson vann sinn risatitil á Augusta vellinum vegna þess hversu góður hann var af hundrað metra færi. Hann er með sterkt grip og rétt eins og Stricker notar hann hendurnar ekki mikið; nokkuð sem ég er afar hrifinn af. Sveifla Johnsons ræðst af snúningi líkamans; grip hans er sterkt, hann tekur baksveifluna og fer svo vel í gegnum höggið. Þetta er sveifla sem markast af snúningi skrokksins, ekki hreyfingum handa og úlnliða. Zack þarf ekki að „redda“ högginu með höndunum, því líkaminn sér um að stjórna kylfublaðinu, og þetta gefur honum mikinn stöðugleika, ekki síst í lengdarstjórnun. Þetta útheimtir þjálfun, en ef þú horfir á sveifluna hjá Zach og skilur þetta með „hæglátu hendurnar“, þá mun það koma fram í aukinni nákvæmni og betri lengdarstjórn. Hver er bestur? Einn þekktasti golfkennari heims, David Leadbetter fjallar um þá kylfinga sem eru að hans mati bestir í kringum flatirnar. Pelz og Phil Mickelson hafa unnið vel saman. Pelz og Phil Mickel- son saman á Opna breska. Hvaða galla sérðu á stutta spilinu meðal bestu kylfinganna? DP: Atvinnumenn æfa það mikið að þeir komast upp með að gera smávægileg tæknimistök. Sumir þeirra eiga stundum í erfiðleikum með að slá höggin nákvæmlega eins og þeir ætla sér, til dæmis hvað varðar spunann sem þeir ætla að setja á boltann. Nefndu mér hæfileikaríkasta kylfing- inn sem þú hefur unnið með? DP: Nú heldur þú kannski að ég muni nefna Phil Mickelson. Ég ætla hins vegar að nefna Gary Hallberg eða Tom Purtzer. Phil er vissu- lega með óhemju mikla hæfileika, en Gary og Tom voru honum fremri, og hefðu sennilega getað verið í fremstu röð í hvaða íþrótt sem var. Þeir bjuggu yfir þvílíkum hæfileikum þegar þeir voru ungir að þeir þurftu í raun aldrei að þróa tæknina eða leggja að sér í þjálfun svo þeir næðu langt. Hefðu þeir virkilega gert það, þá hefðu þeir getað orðið í fremstu röð kylfinga – mögulega þeir bestu. Á hinum endanum er Tom Kite, sem var ekki með sömu meðfæddu hæfileikana í íþróttum. Hann braust áfram af eigin rammleik, gafst aldrei upp, og ávann sér sæti í Frægðarhöll golfsins. Af þeim kylfingum sem þú hefur unnið með, hver er, eða var, sá besti í stutta spilinu? DP: Það er Mickelson. Hann er með bestu tilfinninguna fyrir þessum höggum og getur slegið þau öll þegar mikið liggur við, án nokkurs ótta við afleiðingarnar. Hann er afar vinnusamur og hefur jákvæða afstöðu. Mic- kelson er einfaldlega snillingur í stutta spilinu því hann hefur ræktað hæfileika sína svo vel. Eru til þjálfunaraðgerðir í stutta spilinu sem þú ert algerlega ósammála? DP: Já, algjörlega. Nefnum dæmi: Phil beygir til dæmis úlnliðina snemma í baksveiflunni og heldur kylfuhausnum opnum í gegnum höggið. Steve Stricker beygir úlnliðina mun minna fyrir sömu tegund af höggi. Þeir eru báðir afar góðir í stutta spilinu. Paul Azinger og aðrir sem eru með óvenjuleg grip hafa þróað sínar eigin aðferðir og náð langt. Þann- ig að við höfum þurft að þjálfa hvern kylfing út frá hans eigin forsendum, líkamsbyggingu og nálgun. Það er hægt að sveifla fleygjárni á fleiri en einn hátt, þannig að ég er algerlega ósammála þeim sem segja að allir eigi að gera eins.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.