Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 114

Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 114
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 114 á leiktíðinni? McIlroy segir að hann hafi aldrei efast um eigin getu. „Nei, aldrei,“ segir hann. „Ég veit að sú vinna sem ég er búinn að leggja í sveifluna mína á eftir að skila mér árangri allan þann tíma sem ég verð atvinnukylfingur. Að sjálfsögðu á ég mín slæmu tímabil, en ég þekki sveifluna mína og veit hvað ég þarf að gera, þegar eitthvað fer úrskeiðis.“ Minningar um góða frammistöðu, til dæmis á Opna bandaríska meistaramótinu árið 2011, hjálpuðu til, þegar á móti blés, eins og til dæmis á Honda Classic mótinu í fyrra, þegar McIlroy hætti keppni. „Getan var enn til staðar,“ segir hann um þetta tímabil á síðasta ári og fyrstu mánuði þessa árs. „Vandamálið var ekki að ég gæti ekki spilað gott golf; ég þurfti bara að finna leið til að leyfa getunni að koma í ljós aftur. Þegar ég komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna breska á Muirfield í fyrra, þá man ég að ég sagði við sjálfan mig að þetta ætlaði ég ekki að láta gerast aftur; það hefur margt breyst á einu ári.“ Með báðar fætur á jörðinni McIlroy reynir hvað hann getur að halda báðum fótum á jörðinni, þrátt fyrir frægð sína og frama síðustu árin. Þess vegna er erfitt að fá hann til að tala um framtíðina og mögulegan sess í sögu golfsins. „Ég þarf að taka eitt skref í einu,“ segir hann og það er nokkuð ljóst að hann er að tala um löngun sína til að sigra á Mastersmótinu næsta vor, klára Alslemmuna og verða þannig sigur- sælasti kylfingur Evrópu. „En golfheimurinn er svolítið að leita að einhverjum til að standa upp; ég hef alveg gefið til kynna að ég vilji verða sá maður.“ „Það felst mikil ábyrgð í því að verða ´andlit golfsins´ eða eitt af þeim andlitum sem golfi- þróttin kennir sig við, en ég held að ég sé fær um að takast á við það. Maður verður að taka því fagnandi og ekki líta á það sem einhverja byrði. Mig langar til að verða kylfingurinn sem reglulega sigrar á risamótum og ég held að ég geti það. Ég er að spila gott golf um þessar mundir og vil auðvitað halda því áfram eins lengi og ég get. Það eru miklar væntingar bundnar við Masters mótið, en það er fullt af verkefnum áður en að því kemur.“ Fyrir réttum sjö árum gekk átján ára gamall McIlroy af St. Andrews vellinum í Skotlandi og fór í hraðbanka: þá átti hann 170 þúsund pund. Hann var þá nýbúinn að tryggja sér þriðja sætið á Alfred Dunhill Links meistara- mótinu með því að spila síðasta hringinn á 68 höggum; þessi verðandi golfmeistari með óstýriláta hárið trúði því varla hvað hann var orðinn vel stæður. Að mörgu leyti hefur ekkert breyst. „Það er mjög mikilvægt að gleyma því ekki hvaðan maður kemur, halda haus og reyna að vera hreinskilinn. Ég er afar heppinn að geta einbeitt mér að þessari íþrótt. Hún hefur gefið mér mikið og ég vil gera það sem ég get.“ Bestu keppnis- tímabilin Hvernig er tímabil Rorys í samanburði? Bobby Jones, 1930 Jones er eini kylfingurinn í sögu golfsins sem sigraði á meistaramótum áhuga- manna og atvinnumanna í Bretlandi og Bandaríkjunum á sama árinu. Hann dró sig í hlé eftir þetta afrek og kom Masters mótinu af stað þremur árum síðar Ben Hogan 1953 Fjórum árum eftir bílslys sem næstum lagði hann að velli var Hogan ósigrandi á vellinum árið 1953. Hann sigraði á öllum fimm mótum PGA mótaraðarinnar, þar á meðal á Masters og Opna bandaríska meistaramótinu, auk þess að sigra á Opna breska, en gat ekki spilað á PGA meistaramótinu. Lee Trevino, 1971 Trevino sigraði á Opna bandaríska, Opna kanadíska og Opna breska meistaramótinu þetta árið. Hann sigraði á sex mótum og fékk fjölda annarra viðurkenninga. Jack Nicklaus, 1972 Nicklaus sigraði átta sinnum árið 1971 og hélt sigurgöngu sinni áfram árið eftir, með því að sigra á Masters og Opna bandaríska. Hann lenti síðan í öðru sæti á Opna breska, einu höggi á eftir Lee Trevino. Tiger Woods, 2000 Tiger sigraði á níu mótum, þar á meðal þremur risamótum. Þegar hann sigraði svo á Masters árið eftir og kláraði ´Tiger Slam´, varð hann eini kylfingurinn í sögu íþróttarinnar að sigra á fjórum risa- mótum í röð. Inbee Park, 2013 Rétt eins og Babe Zaharias árið 1950 sigraði Park á þremur risamótum í röð og fékk þar með tækifærið til að verða eini kylfingurinn til að ná öllum fjórum risatitlunum á einu ári.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.