Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 42

Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 42
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 42 „ÞETTA ER ORÐIÐ FÍNT“ Jón Pétur Jónsson hættir sem formaður GR eftir 15 ára stjórnarsetu MP banki hefur verið valinn fremstur í flokki í eignastýringar þjónustu á Íslandi af alþjóðlega fjármálatímaritinu World Finance. Hafðu samband við sérfræðinga okkar og kynntu þér kosti eignastýringar MP banka. www.mp.is Ármúli 13a / 540 3200 Framúrskarandi eignastýring Ég tók ákvörðunina í október að bjóða mig ekki fram og þegar ég fór að rifja þetta upp þá finnst mér samt að það hafi bara verið í gær sem ég tók við þessu embætti. Það er merki um að maður hafi haft gaman að verkefninu,“ segir Jón Pétur Jónsson sem hætti sem formaður Golfklúbbs Reykjavíkur í byrjun desember en hann hafði gegnt embættinu frá árinu 2007. „Þetta er orðið fínt, ég er búinn að vera í stjórninni í 15 ár og ég held að það sé rétti tíminn að stíga til hliðar. Eru ekki allir búnir að fá nóg af mér,“ segir Jón í léttum tón þegar Golf á Íslandi hitti hann í Erninum sem er fyrirtæki í hans eigu. Það eru margir hápunktar sem Jón dregur fram þegar hann er inntur eftir því hvað standi uppúr í formannstíð hans. „Frá því um aldamót hef ég tekið þátt í verkefnum og fjárfestingum fyrir tæpan milljarð kr. hjá GR. Korpúlfsstaðavöllur er langstærsta verkefnið sem ég hef komið að sem stjórnarmaður. Það var virkilega gaman að því að hafa upplifað þá framkvæmd. Ég held að þegar Korpan var byggð þá var það hugmyndin að gera þægi- legan „sveitavöll“. Það kom mér þægilega á óvart þegar Birgir Leifur Hafþórsson sagði að Korpan væri einn af fáum almennilegum keppnisvöllum á Íslandi áður en hann var stækkaður í 27 holur. Keppniskylfingarnir sjá vellina með öðrum augum en við „áhuga- mennirnir“. Birgir sá þessa möguleika í vellinum og þessi orð hans vöktu marga til umhugsunar og breyttu ímynd vallarins. Korpan er glæsilegur keppnisvöllur og sér- staklega eftir að hann var stækkaður í 27 holur og „Landið“ varð að veruleika.“ Skortur á teigtímum Helstu ágreinisefnin í stjórnartíð Jóns Péturs voru skortur á teigtímum fyrir félaga í GR en hann er ekki í vafa um að ástandið hefur lagast mikið eftir stækkunina í Korpu. Hann segir að það séu alltaf skiptar skoðanir í 3000 manna golfklúbb en hann upplifir ekki stemninguna með þeim hætti að það séu „pirraðir“ félagar í GR úti á bílastæði á morgnana með kröfuspjöld. „Það sem hefur gerst á Korpunni eftir stækkunina er að það er til nóg af teigtímum eins og ástandið hefur verið undanfarin tvö sumur. Veðurfarið gæti haft þar stór áhrif og það er of snemmt að draga álykt- anir frá síðustu tveimur sumrum. Það er engin launung að það er minna af leiknum hringjum á Grafarholtsvelli. Hann opnar seinna, kemur verr undan vetri og er erfiður undir fótinn. Það sem hefur slegið í gegn er efri hlutinn á Korpunni, Áin og Landið. Við erum með 8% aukningu á Korpunni í sumar og aðallega í 9 holu hringjum. „Sjórinn“ er að margra mati erfiðasti hluti vallarins og ég get alveg tekið undir það. Í gegnum árin hefur verið óánægja með teigtíma en það hefur verið leyst m.a. með fjögurra daga bókun. Að mínu mati er það lágmarks kurteisi að bóka sig fram í tímann. Breytingar á Korpunni vel heppnaðar Það hefur vakið lukku hjá gestum á Korpunni að sífellt er verið að breyta því hvernig völlurinn er leikinn. Það er með ráðum gert segir Jón Pétur. „Við viljum ekki festa eina „9 holu lykkju“ sem fasta á Korpunni. Það er ávallt skipt um 9 holu lykkju og að mínu mati þá verður völlurinn sterkari sem heild fyrir vikið. Það eru allar 9 holurnar jafngóðar og við viljum geta keppt á öllum 9 holunum. Það er greini- legt að eftirspurnin eftir 9 holu golfhring er að aukast. Ég veit það sjálfur að það er mun auðveldara að „skreppa“ í golf og taka 9 holur á rúmlega 2 tímum með öllu. Og eftir slíkan hring þá finnst mér allur dagurinn vera eftir. Það eru uppi hugmyndir um að hafa einn til tvo daga í viku aðeins sem 9 holu hringi á Korpunni og það væri áhuga- vert að prófa slíkt.“ Básarnir áttu ekki að vera svona Æfingasvæðið Básar er einnig stórt verkefni sem unnið var í stjórnartíð Jóns en Básar voru opnaðir árið 2004. Hann segir að í fyrstu hafi Básar alls ekki átt að vera eins og þeir eru í dag. „Fyrst þegar hugmyndin vaknaði að byggja æfingasvæðið Básar þá voru menn að hugsa um allt annað en það sem er raunin í dag. Það sem var byggt og er til staðar í dag var langt frá þeim hugmyndum sem voru ræddar í fyrstu. Við sáum ekki mikið meira en „yfirbyggða skúra“ á einni hæð – þetta var hugmyndafræðin sem var unnið með á þeim tíma. Hugmyndi þróaðist síðan upp í 72 bása æfingasvæði – sem gerir það að verkum að öll æfingastaða verður betri. Okkur tókst þetta og í framhaldinu kom Hraunkot í Hafnarfirði og það er ekki langt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.