Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 20

Golf á Íslandi - 01.12.2014, Side 20
GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is 20 FACEBOOK.COM/KRINGLAN.ISKRINGLAN.IS GEFÐU AF ÖLLU Gjafakort Kringlunnar er gjöf af öllu hjarta. Þú færð kortið á þjónustuborði á 1. hæð við Hagkaup eða á kringlan.is HJARTA Kylfingar í golfklúbbum voru í lok sumars 16371 og fækkaði um 231 á árinu. Haukur sagði að á undanförnum 10 árum hafi tíu þúsund kylfingar hætt í íslenskum golf- klúbbum. „Á þessum sama áratug fjölgaði skráðum kylfingum engu að síður umtalsvert. Stærstur hluti þessa tíu þúsund kylfinga er enn kylfingar þótt þeir tilheyri ekki lengur golfklúbbi. Þessi fjöldi kylfinga hætti að sjá verðmæti í því að tilheyra klúbbi og það er okkar verkefni að sannfæra þá um annað. Það er okkar verkefni að sýna þeim fram á kosti félagsaðildar í stað greiðslu á ein- stöku vallargjaldi eða félagskorti í golfklúbbi starfsmannafélagsins. Það er ekki nóg að huga einungis að fjölgun nýrra félagsmanna, heldur verðum við að bregðast við brottfallinu. Leiðirnar að þessu verkefni eru óteljandi margar og ekki hægt að benda á eina rétta leið umfram aðrar. Um er að ræða samspil mismunandi þátta sem hafa snertiflöt við mótamál, kynningarmál, afreksmál, þjónustu golfklúbba, bætta æfingaaðstöðu, golf- kennslu og fleira og fleira. Golfhreyfingin hefur sameiginleg markmið og þarf því að vinna sem ein heild. Þótt gríðarlegur árangur hafi náðst undanfarinn áratug þá er fjölgun íslenskra kylfinga ekkert lögmál. Við eigum að stefna sameiginlega á að fjölga kylfingum, halda þeim í okkar röðum og þjónusta þá eins vel og við getum. Það gerum við með auknu samstarfi á milli golfklúbba og GSÍ,“ sagði Haukur m.a. en árskýrslu GSÍ má lesa í heild sinni á golf.is. Brýnasta verkefni golfhreyfingarinnar næstu árin er að koma í veg fyrir fækkun félagsmanna. Á formannafundi GSÍ komu fram áhuga- verðar tölfræðiupplýsingar í skýrslu stjórnar. Meðalforgjöf karla á Íslandi er um 22 og hjá konum er þessi tala 32. Um 60% kylfinga eru á höfuðborgarsvæðinu en GR er með flesta félaga eða rétt um 3000 og er því annað stærsta íþróttafélag landsins. Heildarvelta golfklúbba landsins á ársvísu er rétt um tveir milljarðar kr. • Fjöldi kylfinga í klúbbum er um 17 þúsund. • Fjölmennasti klúbburinn er GR með um 3000 félaga og er klúbburinn því annað stærsta íþróttafélagið á landinu. • Lengsta brautin á landinu er 600 m af gulum teig á Víkurvelli í Mýrdal. • Lengsti 18 holu völlur á landinu er Grafar- holtsvöllur, leikinn af hvítum teigum, samtals 6.057 m. • 60 hektarar er meðalstærð 18 holu golf- vallar. (43% eru undir brautum) • Meðalforgjöf íslenskra karlkylfinga er um 22 en kvenkylfinga um 32. • Um 60% allra kylfinga eru á höfuðborgar- svæðinu. • Á hverju ári eru leiknir hátt í 35.000 hringir á 18 holu völlum höfuðborgarsvæðisins. • Á æfingasvæðunum Básum og Hraunkoti eru yfir tíu milljónir bolta slegnir á ári. • Um 20% af öllum kylfingum taka þátt í meistaramótum klúbbanna. • 2% kylfinga á Íslandi er í forgjafarflokki 1 (forgjöf 4.4 og undir) • Rúmlega 130.000 forgjafarhringir eru skráðir á ári í tölvukerfi GSÍ. • Kylfingar eru að meðaltali með fimm skráða forgjafarhringi á ári. • Áætlaður fjöldi erlendra kylfinga sem leika hér er á hverju ári er um 5000. • Heildarvelta golfklúbba er um 2 milljarðar. 1% FÆKKUN Á MILLI ÁRA - 10.000 fyrrum félagsmenn farnir úr hreyfingunni Lífleg umræða var um „fyrirtækjagolf- klúbba“ á formannafundinum í Borgarnesi. Undanfarin ár hafa 10.000 kylfingar hætt í golfklúbbum og stóra spurningin er hvert þeir kylfingar hafa farið? Álitaefnin eru mörg og m.a. hvort það sé jákvætt fyrir hreyfinguna að óhefðbundnum starfs- mannaklúbbum sé að fjölga en skiptar skoðanir voru um þetta mál á fundinum. Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdastjóri GOS, fór yfir þessi mál ásamt Hauki Erni Birgissyni, forseta GSÍ. Hlynur fór yfir þá reynslu sem GOS hefur fengið að samstarfi klúbbsins við starfsmannagolfklúbb Íslandsbanka. Það jákvæða að mati Hlyns var að með slíkum samningi væri mun meira „líf “ á Svarfhóls- velli en um 50% af heildarfélagfjölda GOS kemur í gegnum fyrirtækjaklúbba. Þessi breyting hefði í raun bjargað klúbbnum sem hefði verið í miklum fjárhagserfið- leikum og tæknilega gjaldþrota. Hlynur benti á að margir hafi byrjað í golfi í gegnum starfsmannafélög en það þyrfti að gæta vel að það væri ekki hagstæðara fyrir hinn almenna félagsmann að ganga úr sínum klúbb og fara í fyrirtækjaklúbbinn. Nokkrir tóku til máls í þessum lið og var bent á að stóru golfklúbbarnir hafi jafnvel verðlagt sig of lágt á þessum markaði – sem bitnaði mest á smærri klúbbunum sem þyrftu að fá meiri tekjur til að láta dæmið ganga upp. Lífleg umræða um fyrirtækjagolfklúbba Heildarársvelta golf- klúbba um 2 milljarðar -2% kylfinga er með 4,4 í forgjöf eða lægra
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Golf á Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.